** Opið hús mánudaginn 21. september frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Uglugötu 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 123,7 m2, þar af íbúð 106,9 m2 og geymsla 16,8 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla er í kjallara. Rúmgóðar og skjólsælar svalir í suðurátt. Fallegar innréttingar frá Parka. Tvö sérmerkt bílastæði á bílaplani. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla, ósnortna náttúru og göngu- og hjólastíga. Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi. Úr herbergi er
gengið út á lóð/bílastæði bakvið hús.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtu. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi er á baðherbergi.
Eldhús er með fallegri innréttingu í opnu og björtu rými. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, vaskur, blástursofn, helluborð og vifta. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa er í opnu rými með eldhúsi. Úr stofu er gengið út á
rúmgóðar yfirbyggðar svalir í suðurátt. Svalirnar eru um 17 m2 (eru ekki í fermetratölu íbúðarinnar).
Sérgeymsla í kjallara er mjög rúmgóð og með glugga. Hefur verið nýtt sem skrifstofurými. Er skráð 16,8 m2.
Annað: Uglugata 2-4 er tveggja hæða fjölbýlishús ásamt geymslukjallara. Húsið er mestu leiti einangrað og álklætt að utan. Eignin skiptist í tvo opna stigaganga með fjórum íbúðum í hvorum stigagangi, samtals átta íbúðir. Upphituð stétt er fyrir framan og aftan hús. Húsið er hannað með tilliti þess að sameiginlegur rekstrar-og viðhaldskostnaður sé sem minnstur. Í stað sameiginlegs rýmis fyrir hjól og vagna eru stórar sérgeymslur í kjallara. Á lóð eru stæði fyrir 16 bíla og hefur húsfélagið merkt tvö stæði fyrir hverja íbúð. Húsið er hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt (Krark) og byggt af Hörðuból ehf.
Verð kr. 92.900.000,-