Gott tækifæri fyrir laghenta, frábær staðsetning.
Árni B.Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Eyrarskóg 22, 301 Akranes, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 210-4535 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarleiguréttur.
Eignin Eyrarskógur 22 er á 4.500 fm leigulóð og er skráð samkv HMS 50.0 fm.
Húsið er staðsett ofarlega í Eyrarskógi og er með góðu útsýni og á skjólgóðu svæði. Húsið skiptist í þrjú svefnherbergi,baðherbergi, stofu og eldhús sem renna saman í eitt rými. Sólskála var bætt við árið 2006. Húsið hefur verið endurnýjað að hluta en það á eftir að klára frágang og baðherbergi er nánast fokhelt, þetta er frágangur allt frá loftlistum yfir í frágang á rafmagni, þess vegna
mælum við með að eignin sé skoðuð vel með fagmanni, þar sem eignin verður seld í núverandi ástandi. Lóðin er kjarrivaxin en mætti grisja og bæta. Sjón er söguríkari.
Lýsing eignar:Forstofa/glerskáli með parket á gólfi.
Gangur með parket á gólfi.
Þrjú góð svefnherbergi með parket á gólfi og hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Eldhús og stofa renna saman í opið rými, dúkur á gólfi, snyrtileg svört eldhúsinnrétting með bökunarofni og helluborði.
Baðherbergi með spónarparket á gólfi, sturta, salerni og vaskur.
Rafmagnshlið inná svæðið sem hægt er að opna með síma. Innan við klukkustundar keyrsla frá Reykjavík og um 20 mínútur yfir til Akraness.
Nánari upplýsingar veita:Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.