Miðvikudagur 11. mars
Fasteignaleitin
Skráð 4. okt. 2024

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
104.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
118.900.000 kr.
Fermetraverð
1.141.075 kr./m2
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
50 ára og eldri
Fasteignanúmer
2532691
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 410.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin er tilbúin til afhendingar fullbúin.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

S8 ehf. býður fjölbreyttar leiðir til að eignast eða flytja í nýtt og glæsilegt heimili á frábærum stað í miðborginni. Skoðaðu hvað leiðir eru í boði á s8.is eða sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar um íbúðina, bókað skoðun beint í Hlíðarhorni, mátað íbúðina og við finnum þá leið sem hentar þér best.

Stórglæsileg 3ja herbergja rúmgóð horníbúð með útsýni á 4. hæð í Hlíðarhorni. Birt stærð er 104,2 fm þar af 8,2 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á suður svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.

Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn gang og beint inn í rúmgott alrými; eldhús með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum útsýnisgluggum og útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Gott svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0029. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðilla og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lundarbrekka 16
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Skoða eignina Lundarbrekka 16
Lundarbrekka 16
200 Kópavogur
107.6 m2
Fjölbýlishús
514
716 þ.kr./m2
77.000.000 kr.
Skoða eignina Garðatorg 2
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 12:00-12:30
Skoða eignina Garðatorg 2
Garðatorg 2
210 Garðabær
143.3 m2
Fjölbýlishús
322
1011 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19 (701) ÞAKÍBÚÐ
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Hringhamar 19 (701) ÞAKÍbúð
221 Hafnarfjörður
135 m2
Fjölbýlishús
322
962 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19 (701) ÞAKÍBÚÐ
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Hringhamar 19 (701) ÞAKÍbúð
221 Hafnarfjörður
135 m2
Fjölbýlishús
322
962 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin