Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi stórri suður timburverönd í fallegu nýju hverfi (Dalshverfi) í Njarðvík. Húsið er klætt og því sérlega viðhaldslétt. Gólfhiti er í öllum rýmum. Eignin skiptist í: forstofu, stórt alrými sem rúmar setustofu, borðstofu og eldhús, 3 góð svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottaherbergi innan íbúðar og sér geymslu í sameign. Íbúðin er vel skipulögð í alla staði. Frá alrými er gengið út á mjög stóra timburverönd með skjólveggjum sem snýr í suður, mikið rými er á milli húsa og því ekkert sem skyggir á veröndina á björtum sólardegi.
Örstutt er í grunnskóla, leikskóla og helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar: Íbúðin er á jarðhæð í góðu tveggja hæða fjölbýlishúsi þar sem allar eignir eru með sérinngang og því lítil sameign í húsinu.
Forstofa: Komið er inn um sérinngang inn í góða forstofu með flísum á gólfi og tvöföldum hvítum forstofuskáp sem nær upp í loft. Hurð með glugga skilur á milli forstofunnar og íbúðar.
Alrými: Setustofa, borðstofa og eldhús.
Setustofa: Setustofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi og stórum glugga. Setustofan er opin yfir að borðstofunni.
Borðstofa: Borðstofan er á milli setustofu og eldhúss. Harðparket er á gólfi. Hurð út á veröndina er á milli borðstofu og eldhúss. Eyja skilur á milli eldhús og borðstofu.
Eldhús: Eldhúsið er með góðri innréttingu á einn vegg með efri og neðri skápum auk eyju sem skilur á milli borðstofu og eldhús. Innréttingin er með neðri skápum í fallegu hnotuútliti og efri skápar eru hvítir. Svört grantíborðplata er á eldhúsbekkjum. Eldavél er í eyjunni með góðu vinnuplássi.
Þvottaherbergi: Inn af eldhúsinu er sér þvottaherbergi með flísum á gólfi, vinnuvaski og hillum á vegg.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með dökkum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Falleg innrétting er undir vaskaborði sem er úr svörtu graníti með ofan á liggjandi vaski. Baðkar er með sturtuaðstöðu og gleri. Handklæðaofn er á vegg við baðkarið. Salernið er upphengt.
3 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú. Öll herbergin eru með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Geymsla: Sér geymsla er í sameign. Birt stærð geymslu er 7,5 m2.
Reynidalur er staðsettur framarlega í Njarðvík þar sem stutt er út á Reykjanesbrautina og aðeins um 20 mínútna akstur að Hafnarfirði. Dalshverfið er í öri uppbyggingu. Göngufæri er í bæði grunnskóla (Stapaskóla) og leikskóla. Um er að ræða fallegt og rólegt fjölskylduhverfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is