Mánudagur 10. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 10. ágúst 2026

Mosabrúnir 11

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
124 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
725.000 kr./m2
Fasteignamat
65.700.000 kr.
Brunabótamat
58.800.000 kr.
Mynd af Stefán Rafn Sigurmannsson
Stefán Rafn Sigurmannsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2006
Garður
Pallur
Heitur pottur
Fasteignanúmer
2304428
Landnúmer
203037
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Upphaflegir
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Frásögn eiganda á þeim framkvæmdum sem hafa átt sér stað síðustu ár:

"Ég kaupi Mosabrúinir 11.  Jan 2015 húsið er þá bara eins og það var byggt sem Bjálkahús. Fljótlega átta ég mig á því að ég er ekki sáttur með húsið eins og það er. Bjálka hús eru ekki góð í Íslenskum aðstæðum. Þá var sest niður með fagmönnum til að plana framkvæmdir.

Ég ræð til mín Smiðina frá Forsæti, Ólafur Sigurjónsson og son hanns Þorberg H Ólafsson. Saman eru þeir einhverjir vönduðustu smiðir sem hægt er að fá og sem dæmi þá er stiginn á milli hæða smíðaður á verkstæðin á Forsæti af Ólafi. Þeir sem skoða húsið sjá fljótt að þetta er allt upp á 10 hjá þeim Feðgum.

Því næst var farið á fund með Runólfur Þ Sigurðsson byggingatæknifr Al-Hönnun ehf. Runólfur teiknaði allar breytingar og sendi inn til samþyktar. Þarna var verið að stækka baðherbergi, loka efri hæð og setja alvöru stiga milli hæða, breyta og stækka eldhús, húsið stækkað og byggður við húsið bílskúr þannig að húsið er í dag 145 fm.  Steiptar undyrstöður undyr pott (potturinn er alltaf á með sírennsli frá yfirfaiil af hitaveitu) glerkúlu sett á pallinn yfir pottinn. Skipta um alla glugga og hurðir og smiðair bæði glugga og hurðir úr alvöru harðviði. Smíðaðir voru stál bitar galvaneseraðir og boltaðir á sökkul til að gera göngu brú með húsinu að austanverðu til að tengja við aðal ingang og pallinn

ATH að öll tæki í eldhúsi og baðherbgi eru ný. Húsið er nýmálað af fagaðila.
Samhliða þessum framkvæmdum þá var farið í að endyrnýja allar vatnslagnir (rústfrítt efni í öllum lögnum - ekkert álpex) og hitakerfi, settur var varmaskiptir frá Loki lagnaþjónusta ehf (Gísli pípari) þannig að allt neysluvatn í húsinu er upphitað ferskvatn en ekki hitaveituvatn. Eins var skipt út öllu úr aðaltöblu, allir lekaleiðar og vör enduinýjuð og raflagnir í húsinu yfirfarnar og uppfærðar eftir atvikum. 
Húsið allt var og gluggar svo klætt með trapisu klæðningu  frá Áltak.

Annað sem mætti telja er að búið er að jerðvegsskipta vestan (kostaði rúmmar 3 milljónir) við húsið til að stækka bílastæði og byggja skjólvegg og reisa sánu á palli sem planaið var að byggja vestan megin við húsið (allt timbur komið á staðinn til að klára verkið) þannig að þá væri komið mikið skjól í suðvestur. Þess vegna var sett gögnuhurð út af baðherberginu til að tengjast nýjum palli með sánu! 

Allar teikningar liggja fyrir hjá ef óskað er eftir þeim."
Gallar
Ás fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um að skoða eignir sérstaklega vel.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Mosabrúnir 11 - Um er að ræða afar veglegt mikið endurnýjað heilsárshús sem er vel staðsett innst inni í botnlanga í þessu fallega sumarhúsahverfi sem er með einstaka fjallasýn.
Húsið er vel skipulagt og skráð 124 fm að stærð samkvæmt fmr, góð staðsetning á fallegri eign sem vert er að skoða rétt fyrir ofan Geysi, húsið er útbúið öllum helstu þægindum.


Samkvæmt eiganda eignarinnar var húsið allt tekið í gegn, sjá nánar í söluyfirliti eignarinnar.

Eigandi hússins hefur jafnframt stækkað bílastæðið hægra megin við húsið (sést lítið á myndunum) en búið er að keyra mikið efni á staðinn þar sem fyrirhugað var að reisa skjóvegg, allt efni til þess er einnig komið á staðinn

Nánari lýsing:
Gengið er inn í húsið að framan inn í bílskúr og þaðan inn í forstofu hússins, forstofa, gangur/hol, fallegur stigi sem tengir saman hæðirnar í húsinu,
bjart alrými sem saman stendur af stofu, borðstofu og eldhúsi í opnu rými, eldhúsið er með góðu skápa og vinnuplássi, uppþvottavél, bakaraofni, combi ofni og stórum ísskápi.
Úr alrýminu er útgengt út á stóra verönd með heitum potti sem er staðsettur inni í glerkúlu sem hægt er að opna alveg.
Tvö svefnherbergi á aðal hæðinni, baðherbergi með innréttingu og "walk in" sturtu, þaðan er einnig útgengt út sem hentar vel þegar verið er að koma inn úr pottinum.
Fallegur stigi er síðan upp á efra loft hússins, sem er rúmgott og með góðri svefn aðstöðu.

Eigandi hússins hefur einnig stækkað bílastæðið hægra megin við húsið sem sést lítið á myndunum en búið er að keyra mikið efni þangað þar sem fyrirhugað var einnig að reisa skjóvegg, allt efni til þess er einnig komið á staðinn.

Um er að ræða fallega eign sem vert er að skoða á þessum fallega stað rétt við Geysi og önnur falleg kennileiti.

Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarkarás 16
Á einni hæð
Skoða eignina Bjarkarás 16
Bjarkarás 16
805 Selfoss
145 m2
Sumarhús
423
551 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Berjaás 8
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Berjaás 8
Berjaás 8
805 Selfoss
145 m2
Sumarhús
423
689 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarhlíð 21
Skoða eignina Skógarhlíð 21
Skógarhlíð 21
806 Selfoss
107 m2
Sumarhús
412
653 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Austurvegur 51
Bílastæði
55 ára og eldri
Skoða eignina Austurvegur 51
Austurvegur 51
800 Selfoss
127.4 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin