Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulögð og björt 43,30 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi við Strandasel 11, í Seljahverfi. Rúmgóðar svalir til suðvesturs. Næg bílastæði fyrir framan hús.Eignin skiptist í forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, svefnhol, baðherbergi og geymslu.Nánari lýsing:Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Opið rými með eldhúsi og stofu. Eldhúsið er með hvítri innréttingu með eldavél og skápum.
Stofan er í opnu rými með eldhúsi. Stórir gluggar eru á allri suðurhlið íbúðar sem gefa mikla birtu. Parket á gólfi.
Útgengt út á rúmgóðar svalir til suðvesturs.
Svefnholið er með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi. Rennihurð milli svefnherbergis og stofu.
Baðherbergi er flísalagt með handlaug, speglaskáp, sturtuklefa og salerni.
Rúmgóð 7,8 fm geymsla fylgir íbúð á geymslugangi í sameign í kjallara.
Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús þar sem hver hefur sína vél, þurrkherbergi og vagna- og hjólageymsla.
Virkilega góð staðsetning miðsvæðis í Seljahverfinu, stutt að sækja þjónustu og verslun. Fallegar gönguleiðir í gegnum hverfið og útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook