Vestursíða 22 íbúð 301 - Snyrtileg 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í góðu fjölbýli - Stærð 70,8 m².
***Eignin getur verið laus fljótlega***
Upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson 888-6661 eða siggithrastar@kaupa.isEignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og sér geymslu í kjallara.
Forstofa er með opnu fatahengi og dúk á gólfi.
Eldhús er með góðri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp og borðkrók. Dúkur á gólfi.
Stofa er björt og nokkuð rúmgóð með dúk á gólfi og er þaðan út gengið á stórar svalir er snúa til vesturs.
Svefnherbergin eru tvö og er fataskápur á báðum og dúkur á gólfi.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, wc og baðkari með sturtutækjum. Opnanlegur gluggi og flísar á gólfi og hluta veggja.
Þvottahús/geymsla er innan íbúðar.
Sér
geymsla er í sameign, þar eru hillur og steypt gólf.
Annað:- Gott útsýni er úr íbúð
- Íbúðin getur verið laus fljótlega
- Hjóla og vagnageymsla í sameign.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.