Nýtt, fallegt, 4ra herbergja endaraðhús að Elsugötu 1, Þorlákshöfn. Húsið er á frábærum stað í nýju, fallegu hverfi sem er í mikilli uppbyggingu í Þorlákshöfn, og er eignin mjög vel staðsett. Eignin er fullbúin að innan sem utan með grófjafnaðari ljóð.
Skipting eignar: Eignin er 129 fm þar af er bílskúr 25,9 fm samkvæmt HMS. Íbúðin samanstendur af þremur svefnherbergjum, forstofu, stofu, borðstofu, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi.
Húsið er byggt úr timbri á steyptri plötu og klætt að utan með lituðu járni. Þak er klætt með lituðu járni.
Frábær staðsetning í nýju hverfi Þorlákshafnar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt og opin að eldhús. Falleg rennihurð er út á verönd til suðurs, parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými með fallegri innréttingu og góðri eyju, tengi fyrir uppþvottavél, spanhelluborð, háfur yfir eyju og bakaraofn, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Gangur: Rúmgóður, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, falleg innrétting, walk in sturta með gler skilrúmi og upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum
Þvottahús: Með góðri innréttingu, skolvaskur og útgengt út á verönd, flísar á gólfi
Bílskúr: Innbyggður 25,9 fm. bílskúr. Innangegnt frá íbúð.
Húsið: Húsið er byggt úr timbri á steyptri plötu og klætt að utan með lituðu járni. Skráð byggingar ár er 2024. Gólfhiti er í húsinu. Innréttingar eru frá Ikea.
Einstaklega fallegt og vel skipulagt endaraðhús í nýju og spennandi hverfi sem er staðsett í Vesturbyggð sem er glænýtt hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar.