Laugardagur 4. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 4. júlí 2026

Kolagata 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
117.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
134.900.000 kr.
Fermetraverð
1.151.024 kr./m2
Brunabótamat
89.450.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
23636112
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Lind fasteignasala kynnir í einkasölu: Glæsilega 117,2 fermetra 3ja herbergja lúxusíbúð á þriðju hæð með svölum við Kolagötu 3 (Hafnartorgi). Íbúðin er frábærlega staðsett í nálægð við alla menningu og verslun og þjónustu sem Miðborgin hefur upp á að bjóða.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSNGAR VEITA
GUNNAR VALSSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 699-3702 /GUNNAR@FASTLIND.IS
PÁLL KONRÁÐ LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 820-9322 /PALL@FASTLIND.IS

Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. 


Íbúðin er hið glæsilegasta eins og fyrr greinir með fallegum innréttingum frá Noblessa og DEKTON stein í eldhúsi, borðplötur á baðherbergjum úr vönduðu Meganite Carrara efni.
Öll eldhústæki eru af vandaðri gerð frá Siemens og vínkæli í eldhúseyju. Aukin lofthæð og allar innihurðar extra háar og framleiddar af HBH smíðaverkstæði. Myndavéladyrasími og blöndunartæki af vönduðustu gerð frá Vola (Tengi). Rafkerfi útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem býður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum. Hita og loftræstikerfi pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss


Eignin skiptist í: Anddyri, 2 svefnherbergi, rúmgóða stofu/borðstofu, góðar svalir, eldhús með eyju, 2 baðherbergi og þvottaherbergi. Geymsla á jarðhæð.

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum. Fataskápar eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð. Inngangshurð er svargrá með viðaráferð frá Huet.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og glæsilegri innréttingu frá Noblessa með eyju. Borðplata er DEKTON steinn og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður kæliskápur, uppþvottavél og vínkælir fylgir. Auk þess innfelld kaffivél, combi ofn og innbyggður gufugleypir í eldhúseyju.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum í tvær áttir. Stofa er opin við eldhús og rúmar setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir.
Svalir: Skjólgóðar til vesturs, útsýni til sjávar.
Baðherbergi I: Er afar glæsilegt með flísum frá Iris stone á bæði gólfi og veggjum. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og miklu skápaplássi. Stór gluggi út rólegri verslunargötu og baðherbergi II inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi II: Virkilega glæsilegt með flísum frá Iris stone á bæði gólfi og veggjum. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi og glugga sem snýr út að svölum.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, innréttingu og vaski. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 7,3 fermetrar að stærð.

Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum, allt frá stílhreinum tveggja herbergja íbúðum upp í stórglæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSNGAR VEITA
GUNNAR VALSSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 699-3702 /GUNNAR@FASTLIND.IS
PÁLL KONRÁÐ LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 820-9322 /PALL@FASTLIND.IS


Bílakjallari.
Í bílakjallaranum, sem er opinn allan sólarhringinn alla daga ársins. Mikið verður lagt upp úr frágangi hvað varðar lýsingu, merkingar og að auki verður fullkomið leiðsagnarkerfi til að auðvelda að finna stæði eða fá leiðbeiningar um hvar bílar eru staðsettir og hvernig eigi að komast að og frá þeim stað sem eigandi bíls er staddur í byggingunum. Íbúum hússins gefst kostur á að gera langtímasamning um leigu á bílastæði.

Byggingaraðili.
Frá árinu 1998 hefur ÞG Verk byggt fjölda heimila fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins.  Meginmarkmið ÞG Íbúða ehf  er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við viðskiptavini.

Hönnuðir.
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun.
Guðbjörg Magnúsdóttir, sem er meðal þekktustu innanhússhönnuða landsins, hannaði og sá um efnisval inn í allar íbúðir á 2-5 hæð húsanna.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 50A
3D Sýn
Skoða eignina Skipholt 50A
Skipholt 50A
105 Reykjavík
106.7 m2
Fjölbýlishús
312
806 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 30
Opið hús:08. júlí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Sóltún 30
Sóltún 30
105 Reykjavík
94.5 m2
Fjölbýlishús
413
846 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Laugarnesvegur 79
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:06. júlí kl 17:00-17:30
Laugarnesvegur 79
105 Reykjavík
95.2 m2
Fjölbýlishús
312
704 þ.kr./m2
67.000.000 kr.
Skoða eignina Kolagata 3
Skoða eignina Kolagata 3
Kolagata 3
101 Reykjavík
125 m2
Fjölbýlishús
322
1191 þ.kr./m2
148.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin