Fimmtudagur 13. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:16. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 12. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Sæviðarsund 8

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
172.7 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
135.000.000 kr.
Fermetraverð
781.702 kr./m2
Fasteignamat
110.950.000 kr.
Brunabótamat
95.750.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1968
Þvottahús
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2018141
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Sæviðarsund 8 Reykjavík

Frábærlega skipulagt raðhús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum! Afar skjólgóður bakgarður, stór sólstofa (um 30 fm.) og bílskúr. 

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt, vel skipulagt 172,7 fermetra raðhús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum á fjölskylduvænum stað við Sæviðarsund í Reykjavík. Eignin er samtals 172,7 fermetrar að stærð og skiptist í 150,8 fermetra íbúðarrými og 21,9 fermetra bílskúr með góðu geymslulofti. Árið 2023 var pappi á þaki endurnýjaður og þá er búið að endurnýja heimtaug fyrir heita og kalda vatnið inn í hús.

Húsið er afar sjarmerandi með mikilli lofthæð í stofum, miklum gluggum til suðurs og vesturs. Fallegur upprunalegur panell og arinn í stofu gefur húsinu mikinn sjarma. Stór u.þ.b. 30 fermetra sólstofa með rennihurð út í skjólgóðan bakgarð til suðurs/suðvesturs. Viðarverönd og hellulögð stétt í bakgarði þar sem við tekur tyrfð lóðin. Fallegur gróður á lóðarmörkum. Snjóbræðsla í stétt fyrir framan hús. 

Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu (geymsla í dag en allar lagnir til staðar), 4 svefnherbergi, rúmgóða stofa (setustofu og borðstofa), eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi, sólstofu og bílskúr með miklu geymslulofti. 

Nánari lýsing:

Forstofa: Er stór með flísum á gólfi og innb. fataskápum.
Svefnherbergi I: Er staðsett inn af forstofu með plastparketi á gólfi, fataskáp og glugga til norðurs.
Gestasnyrting/geymsla: Er í dag nýtt sem geymsla en allar lagnir til staðar til þess að útbúa gestasnyrtingu.
Hol: Með parketi á gólfi og eikar panel á veggjum og lofti.
Stofa: Er rúmgóð og skiptist í setustofu og borðstofu. Aukin lofthæð, parket á gólfi og gluggar til suðurs og vesturs. Fallegur eikar panell í loftum og sjarmerandi arinn í setustofu. Útgengi í sólskála.
Sólskáli: Er u.þ.b. 30 fermetrar að stærð með viðargólfi gler gluggum til suðurs inn í bakgarð hússins. Rennihurðar og gler í þaki. 
Eldhús: Með dúk á gólfi og upprunalegri eldhúsinnréttingu. AEG bakaraofn, Gorenje spansuðu helluborð og uppþvottavél. Flísar á milli skápa, gluggi til norðurs og borðkrókur. Fallegur panell í loftum.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með korkflísum á gólfi og glugga til norðurs. Innrétting, vaskur og tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Svefngangur: Með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi (svefnherbergi II): Er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skápum. Möguleiki væri að bæta við skápum og jafnvel útbúa fataherbergi með breytingum á skipulagi.
Svefnherbergi III: Með plastparketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi IV: Með plastparketi á gólfi og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Innrétting við vask, baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta. Niðurtekið loft með innfelldri lýsingu og útloftun.

Bílskúr: Er 21,9 fermetrar að stærð. Mikil lofthæð og gott geymsluloft. Heitt og kalt vatn er í bílskúr.
Útigeymsla: Er óupphituð og er staðsett undir útitröppum

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað í Sæviðarsundi við Laugardalinn þaðan sem stutt er í skóla á öllum skólastigum, Íþróttasvæði Þróttar og Ármanns, Laugardalslaug, verslun og þjónustu og alla afþreyingu sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Stutt er í helstu stofnæðar frá hverfinu.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dugguvogur 13
Bílastæði
Skoða eignina Dugguvogur 13
Dugguvogur 13
104 Reykjavík
170.7 m2
Fjölbýlishús
423
849 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 13
Bílastæði
Skoða eignina Dugguvogur 13
Dugguvogur 13
104 Reykjavík
170.7 m2
Fjölbýlishús
423
849 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Trilluvogur 7
Bílastæði
Skoða eignina Trilluvogur 7
Trilluvogur 7
104 Reykjavík
180.7 m2
Raðhús
535
719 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Trilluvogur 9
Bílastæði
Skoða eignina Trilluvogur 9
Trilluvogur 9
104 Reykjavík
189.2 m2
Raðhús
734
739 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin