LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4 herbergja 103.2 fm íbúð á 3 hæð við Vesturberg 118 í Reykjavík.
Birt stærð eignar er 103.2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 5 fm geymsla.
Eignin skiptist í eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús inn af eldhúsi og geymslu.
Eignin sem um ræðir er virkilega hlýleg, snyrtileg og vel skipulögð. Tvennar svalir eru á íbúðinni sem vísa í austur og vestur og næst því bæði morgunn- og kvöld sól. Gott útsýni yfir borgina er af vestursvölunum. Íbúðin er vel staðsett innan hverfisins. Mjög stutt göngufjarlægð í tvo grunnskóla, leikskóla, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Breiðholtslaug, líkamsrækt, verslanir, heilsugæslu, bókasafn og alla helstu þjónustu. Göngufjarlægð í útivistarperlur Elliðaárdalsins.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar í síma 822-8574 eða arinbjorn@fastlind.is
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísar á gólfi.
Eldhús ljós innrétting er í eldhúsinu og parket á gólfi. Þvottahús er innaf eldhúsi
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með parket á gólfi. Úr stofu er útgengt á vestur svalir með útsýni yfir borgina.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi, fataherbergi og austur svölum.
Barnaherbergi I er með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi II er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari sem er með sturtu blöndunartæki og snyrtilegri innréttingu.
Þvottahús er innan íbúðar, með innréttingu, flísar á gólfi og opnanlegum glugga.
Geymsla er 5fm og er staðsett í sameign.
Framkvæmdir á húsi síðastliðin ár:
2010 Skipt var um glugga í öllu húsinu að undanskildum þeim gluggum sem liggja að svölum íbúða.
2020 - 2021 Framhlið háþrýstiþvegin og allur múr yfirfarinn og viðgerður og öll framhlið máluð, þ.m.t. svalir og svalahandrið. Bakhlið háþrýsti þvegin og múr yfirfarinn og viðgerður á öllum svölum. Múr og handrið málað á bakhlið.
2020 Þak yfirfarið og málað.
2023 Nýtt dyrasímakerfi með myndavél.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
Nánari upplýsingar veitir Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali í síma 822-8574 eða á netfangi arinbjorn@fastlind.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.