Þriðjudagur 8. september
Fasteignaleitin
Opið hús:13. sept. kl 13:00-13:30
Skráð 8. sept. 2026

Álftamýri 34

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
122.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
651.182 kr./m2
Fasteignamat
77.300.000 kr.
Brunabótamat
57.570.000 kr.
Eggert Ólafsson
Löggiltur fasteignasali og löggiltur leigumiðlari
Byggt 1964
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2014264
Landnúmer
103695
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað járn árið 2017
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Geislahitun með hitaveitu
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Bílskúrshurðaopnari virkar ekki vel.
*LAUS VIÐ KAUPSAMNING*
Lögheimili eignamiðlun kynnir bjarta og fallega 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi, ásamt bílskúr, á góðum og fjölskylduvænum stað.  Birt stærð eignar er samtals 122,7 fm. og þar af er bílskúr 20,9 fm., skv. fasteignayfirliti.  Suður svalir.  Stór sameiginleg lóð.  Örstutt er í grunnskóla, leikskóla, íþróttafélag og í  göngufæri við þjónustu og verslun.

Endurnýjað og viðgert:
Húsið:  Sumarið 2024 var skipt um stofuglugga og gluggar málaðir.  Árið 2017 var járn á þaki hússins endurnýjað.  Árin 2017-2018 var húsið sprunguviðgert og málað í heild sinni.
Íbúð:  Árið 2022 var eldhúsinnrétting ásamt tækjum endurnýjuð og settar nýjar flísar á eldhúsgólf og anddyri.  Árið 2017 var endurnýjað í baðherbergi.
Bílskúr: Árið 2021 var ljósum á bílskúrum skipt út fyrir ný.  Árið 2017 var soðinn dúkur settur á þak bílskúra.

Eignini skiptist í:  Þrjú svefnherbergi, anddyri, hol, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, sérgeymslu í kjallara og bílskúr. 

Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is


Nánari lýsing:
Anddyri:
Opið inn í hol.
Hol: Með fataskáp og opið inn í stofu.
Stofa/borðstofa: Björt og með útgengt á suður svalir.
Eldhús: Endurnýjuð hvít innrétting, tengi fyrir uppþvottavél og opið inn í hol.
Hjónaherbergi: Með fataskáp.
Tvö barnaherbergi: Annað er með fataskáp.
Baðherbergi: Hvítur skápur undir vask og einnig á vegg, rúmgóð flíslögð sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og flísar upp veggi.
Gólfefni:  Parket er á gólfum, nema á herbergjum þar sem er plastparket og á eldhúsi, baðherbergi og anddyri þar sem eru flísar.
Sérgeymsla:  Í kjallara.
Þvottahús og hjólageymsla: Sameiginlegt í kjallara.

Bílskúr: Er með göngudyrum á bílskúrshurð, rafmagni, 3ja fasa tengil, hitaveitu og köldu rennandi vatni.

Annað:  Samkvæmt fasteignayfirliti er birt stærð íbúðar 96,3 fm., geymslu í kjallara 5,5 fm. og bílskúrs 20,9 fm., eða samtals 122,7 fm.  Myndir í auglýsingu voru teknar árið 2023 og ekki sömu litir í dag á öllum inniveggjum.  Geyslahitun með hitaveitu, er í loftum íbúðarinnar.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.  Nánari upplýsingar eru t.d. á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/08/202144.300.000 kr.54.500.000 kr.122.7 m2444.172 kr.
20/12/201942.050.000 kr.44.000.000 kr.122.7 m2358.598 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1983
20.9 m2
Fasteignanúmer
2014264
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
10
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.070.000 kr.

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fellsmúli 18
Efsta hæð
Skoða eignina Fellsmúli 18
Fellsmúli 18
108 Reykjavík
105.4 m2
Fjölbýlishús
413
644 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 1
Bílastæði
Skoða eignina Sunnusmári 1
Sunnusmári 1
201 Kópavogur
144.1 m2
Fjölbýlishús
615
832 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb201
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:09. sept. kl 17:30-18:00
Vetrarbraut 2-4 íb201
210 Garðabær
110.5 m2
Fjölbýlishús
312
931 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7A íb.201
Bílastæði
Opið hús:13. sept. kl 12:00-12:30
Eirhöfði 7A íb.201
110 Reykjavík
136.4 m2
Fjölbýlishús
4
1004 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin