Skeifan og Halldór Kristján kynna:  Glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús við Sæbraut 10.  Einkar vel skipulagt fjölskylduvænt hús með góðum útisvæðum við eina fallegustu götu höfuðborgarsvæðisins.Nánari upplýsingar veitir HALLDÓR / Sími: 618-9999 / HALLDÓR@SKEIFAN.ISÞetta er glæsileg eign á einstaklega fallegum og skjólgóðum stað á Seltjarnarnesi. Sjón er sögu ríkari.Efri hæð: Gengið er bent inn á efri hæð frá götu og skiptist hún í, anddyri, sjónvarpsstofu, hjónaherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, 2 barnaherbergi, 3 baðherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi innaf.
Neðri hæð/jarðhæð: Gengið er niður stiga úr eldhúsi á neðri hæðina, hún skiptist í 1-2 herbergi, stórt baðherbergi, þvottaherbergi og innangengt er í bílskúr.  Auðvelt er að fjölga svefnherbergjum.
Nánari lýsing: Komið er inn í 
anddyri með flísum á gólfi. 
Góður fataskápur er í anddyri. Úr anddyrinu er svo gengið inní húsið.
Sjónvarpsstofan er eitt rými með parketi á gólfi. 
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi, fataherbergi og baðherbergi með sturtu er þar innaf með flísum á gólfi og hluta veggja.
Gangur: Parket á gólfi.
Baðherbergi 2 á gangi: Flísar á gólfi nett innréttingu.
Eldhús: Snyrtilegt og var endurnýjað fyrir nokkrum árum.  Flísar eru á gólfi í eldhúsi og steinn á borðum.  
Baðherbergi 3 með sturtu og baði, flísar í hólf og gólf.
Barnaherbergi: Parket á gólfi nettir skápar
Skrifstofa: Með parketi.
Neðri hæð/jarðhæð:Gangur: Flísar á gólfi
Herberbergi: Parket á gólfum.
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf
Þvottarými: Flísar í hólf og gólf.
Bílskúr: Steypt gólf að hluta og hellur.
Garður: Er vel gróinn, heitur&kaldir pottar á palli.
Innkeyrsla: Er með hita í plani.
Sæbraut 10 er einstaklega vel við haldið hús í áranna rás og búið er að endurnýja og endurbæta flest innan sem utan dyra, á gólfum eru í flestum tilfellum niður límt eikar parket og flísar eru af vönduðustu gerð þar sem það á við, eignin býður uppá stórar stofur með mikilli lofthæð og skemmtilegu flæði, Einstök hönnun, með mikið náttúrulegt ljós með útsýni til sjávar sem gerir þetta heimili tilvalið fyrir fjölskyldur sem vilja láta fara vel um sig.
Aukaíbúð: Möguleiki er að gera auka íbúð á neðri hæðinni. 
Garðurinn við húsið er snyrtilegur og í góðri rækt. 
Húsið er allt vandað og hefur fengið gott viðhald undanfarin ár. 
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi þaðan sem skóli, leikskóli, falleg útivistar- og göngusvæði, golfvöllurinn, íþróttasvæði Gróttu, sundlaug Seltjarnarness og líkamsrækt er í göngufæri. Nánari upplýsingar veitir HALLDÓR / Sími: 618-9999 / HALLDÓR@SKEIFAN.ISEignin er mögulega ekki í samræmi við samþykktar teikningar
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 kr fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Skeifan fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.