KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu FURUVELLIR 4, 221 Hafnarfirði.
Einbýlishús á einni hæð með þremur svefnherbergjum og tvöföldum bílskúr að Furuvöllum 4, Hafnarfirði, Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu, eldhús, hol, þrjú herbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla, tvöfaldur bílskúr.
Húsið er timburhús á einni hæð, byggt árið 2005, 198.1m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Nánari lýsing:
Anddyri, fjórfaldur fataskápur, innangengt er í herbergi III frá anddyri.
Alrými, stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa í opnu rými, eldhús er opið við borðstofu.
Frá borðstofu er útgengt út á timburverönd með skjólveggjum.
Herbergi I, hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi II, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi III, flísar á gólfi.
Eldhús: U-laga innrétting, spahelluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (fylgir) glerskápar eru við „barborð“ á innréttingu, flísar á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting með tveimur handlaugum, granít borðplata, upphengt salerni, sturta og hornbaðkar, innfelld tæki, handklæðaofn, gluggi.
Þvottahús: Innrétting með skápum og vinnuborði, vaskur í borði, hækkun fyrir tvær vélar í innréttingu, snúrur og gluggi, útgengt, epoxy á gólfi.
Bílskúr: Tvöfaldur bílskúr, lakkað flot á gólfi. Inntök, grindur, rafmagnstafla, tvær hurðar með rafrænni opnun, gönguhurð út í garð á aftanverðum bílskúr.
Furuvellir 20 er timburhús á steyptum grunni byggt árið 2004, klætt að utan. Valmaþak, bárujárn á þaki. Timburgluggar og hurðar. Mynstursteypt bílaplan og gangstétt með hitalögn er framan við húsið. Lóð er gróin/frágengin.
Lóð, 726 m² leigulóð í eigu Hafnarfjarðarkaupstaðar, lóðarleigusamningur til XX ára frá 1. október XXX, skjal nr. XXXX.
Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun, róleg staðsetning í grónu umhverfi á Völlunum.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Símsvörun alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 29/07/2024 | 116.650.000 kr. | 123.500.000 kr. | 187.3 m2 | 659.369 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 127,2 | 119,9 | ||
101 | 159,4 | 119,9 | ||
109 | 224,3 | 179,9 | ||
221 | 300,4 | 204 | ||
221 | 87 | 69,9 | ||
221 | 209 | 152,7 |