Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Einstaklega vönduð og falleg 2ja herbergja íbúð, merkt: 202 á 2. hæð í lyftuhúsi.
Íbúð á 2. hæð til suðurs og norðurs. Í íbúðinni er alrými, þ.e. stofa, borðstofa og eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi með svalir til norðurs. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Mjög er vandað til íbúðanna á allan hátt.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.isÍbúð: 0202
Hæð: 2
Tegund: 2ja herbergja
Stærð: 56,0 m²
Geymsla: 9,2 m² merkt 0002.
Íbúðin: Forstofa: Forstofa er með fataskáp.
Eldhús: Innrétting er frá HTH Ormsson. Tæki eru frá Electrolux.
Stofa / borðstofa: Er opin við eldhús.
Svefnherbergi: Er með fataskáp frá HTH Ormsson og útgengi á svalir til austurs.
Baðherbergi: Baðinnrétting frá HTH Ormsson. Hreinlætistæki frá Grohe eða sambærilegt. Salerni er upphengt. Gólf eru flísalögð ásamt hluta baðherbergisveggja.
Þvottahús: Er sameiginlegt í kjallara hússins.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign hússins merkt 0002 og 9,2 fm.
Húsið: Hluti hússins er endurgerð á eldra húsi þar sem innra skipulag hússins er breytt og hæð bætt ofan á og hinn hluti hússins er viðbygging úr forsteyptum samlokueiningum. Nýtt stigahús með pallalyftu og aðalinngang á 1. hæð og bakinngang úr garði inn í kjallara og hjólageymslu sameinar báða hluta hússins. Á hverri hæð eru tvær íbúðir í endurgerða hlutanum og ein í viðbyggingunni. Á 4. og efstu hæð hússins eru sitthvor risíbúðin. Í kjallara eru geymslur, hjólageymsla, þvottahús og inntaksrými. Íbúðum efri hæða fylgja svalir og á 1. hæð verða þrjár íbúðir með frönskum svölum. Íbúðirnar verða afhentar án megin gólfefna en baðherbergi verða flísalögð. Lítill inngarður er við baklóð hússins þar sem aðgengi er í kjallara, hjólageymslu og stigahús ásamt sorptunnuskýlum utandyra. Aðalinngangur er í nýrri viðbyggingu við austurhlið hússins. Húsið er ýmist steinað og/eða filtað og málað að utan.
Umhverfið: Laugavegur 145 er miðsvæðis og í göngufæri við alla helstu þjónustu og þá menningu sem miðbær Reykjavíkur býður uppá. Um 100m eru niður á Hlemmtorg þar sem fyrirhuguð er mikil umbylting í þeim tilgangi að stækka miðbæinn og auka menningu og afþreyingu á svæðinu. Sú breyting mun minnka almenna umferð bíla og strætisvagna við Laugaveg 145 en með fyrirhugaðri miðstöð borgarlínu mun þetta svæði verða einn helsti tengipunktur samgangna á höfuðborgarsvæðinu í framtíðinni.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.