RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignasali kynna: Falleg 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í góðu fjölbýli. Íbúðin sjálf er 2ja herbergja en á sömu hæð við hlið íbúðar er auka herbergi sem auðvelt væri að leigja út. húsið var tekið í gegn að utan 2021-2023, sprunguviðgert, málað, skipt um ruslageymsluhurðar, hjólageymsluhurðar, glugga, gler og svalahurðir eftir þörfum, og bætt við útblástursviftum í þak í hverjum stigagangi og þakkantur lagaður.
***SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D***Nánari lýsing:
Gengið inn í forstofu með parket á gólfi og fatahengi.
Baðherbergi er inn af forstofu, flísalagt með ljósri innréttingu, uppengdu wc, handklæði og rúmgóðri "walk in" sturtu.
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Eldús og stofa í opnu rými með parket á gólfi. Eldhús með ljósri innréttingu og t.f. uppþvottavél.
Stofa með útgengi út á steypta verönd og út í garðinn.
Auka herbergi er á hæðinni á móti inngangi íbúðar, og hefur verið í útleigu, en gæti einnig nýst vel fyriir unglinginn.
í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla, sameiginlegt þvottahús og auka geymsla fyrir dekk og slíkt, nýlega máluð sameign í kjallara. Sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börnin.
Einstaklega skemmtileg eign i snyrtilegu fjölbýli í góðu hverfi. Nánari upplýsingar gefur Sigriður lgf. í síma 663 3219 eða sigga@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.