Mánudagur 25. maí
Fasteignaleitin
Opið hús:28. maí kl 17:00-17:30
Skráð 25. maí 2026

Hnjúkamói 12

FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
80.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.000.000 kr.
Fermetraverð
670.807 kr./m2
Fasteignamat
48.600.000 kr.
Brunabótamat
50.400.000 kr.
HH
Hrönn Harðardóttir
Löggiltur fasteignasali
https://kaupstadur.isEignalisti
Garður
Fasteignanúmer
2516058
Landnúmer
232178
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Svalir
Nei
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging

KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu HNJÚKAMÓI 12 ÍBÚÐ 101, Þorlákshöfn.

Nýleg þriggja herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi í Móabyggð sem staðsett er miðsvæðis í Þorlákshöfn.

Stutt er í alla almenna þjónustu og útivist og ýmisskonar afþreyingu. Staðsetning smellið hér.

Birt stærð eignar er 80.5 m² þar af íbúð 75.2 m² og geymsla 5.3 m² samkvæmt fasteignayfirliti HMS.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.

Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi hol, tvö herbergi og baðherbergi/þvottur.

Í sameign: Sér geymsla.

NÁNARI LÝSING:
Anddyri: tvöfaldur fataskápur, harðparket á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er út á hellulagða verönd, harðparket á gólfi.
Eldhús, HTH innrétting, AEG keramik helluborð og bakaraofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu.
Herbergi I, hjónaherbergi, HTH fataskápar, harðparket á gólfi
Herbergi II, tvöfaldur HTH fataskápur, harðparket á gólfi.
Baðherbergi / þvottur, vaskinnrétting með handlaug í borði, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísalagt gólf og hluti veggja. Innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla (merkt 104) er í sameiginlegu geymslurými.
Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöð liggur að stæði.

Nánar um húsið.
HNJÚKAMÓI 12 er sexíbúða tvílyft hús. Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk. Á hvorri hæð eru þrjár íbúðir og þrjár geymslur ásamt sameiginlegu tæknirými. Lóð er sameiginleg gróin/frágengin, sérnotaflötur fylgir íbúðinni.

Lóð er 689 m² leigulóð í eigu Sveitarfélagsins Ölfus, lóðarleigusamningur til ára frá 15. nóvember 2022, skjal nr. 447-X-002800/2022.

Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu Hnjúkamói 12 Þorlákshöfn, skjal nr. 447-L-000018/2023.

Íbúð 0101 (Fasteignanúmer 2516058) Birt stærð séreignar er 80.5 m². Hlutfallstala í lóð og sameign mhl. 01 er 16,19% Hlutfallstala í bílastæðalóð er 2,32%. Hlutfallstala í hitakostnaði mælis er 16,56%. 75.2 m² íbúð á 1. hæð merkt 01-01 ásamt 5.3 m² geymslu merkt 01-04 og hlutfallsleg eign í mhl. 01 og í lóðinni og bílastæðalóð. Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af lóð skv. meðf. fylgiskjali. Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af bílastæði nr. 17 á bílastæðalóð BL3.4.Hitakostnaður Einn mælir er í matshlutanum. Rafmagnskostnaður Sér mælir er fyrir hverja séreign í mhl. 01 og greiðir hver séreign af sínum mæli. Sér mælir er síðan fyrir sameign og skiptist sá kostnaður jafnt milli 6 séreigna í matshlutanum.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.

Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður

Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/04/202335.800.000 kr.47.500.000 kr.80.5 m2590.062 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Leifsgata 24
Opið hús:26. maí kl 16:30-17:00
Leifsgata24_aðalmynd.jpg
Skoða eignina Leifsgata 24
Leifsgata 24
101 Reykjavík
96.9 m2
Fjölbýlishús
413
928 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Ásbúð 89
Opið hús:27. maí kl 17:15-18:00
DJI_0394.jpg
Skoða eignina Ásbúð 89
Ásbúð 89
210 Garðabær
276.9 m2
Fjölbýlishús
735
686 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (108)
SouthEastView.jpg
Áshamar 56 (108)
221 Hafnarfjörður
90 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Bjarkavellir 1C
20260511-_OA_7788.jpg
Skoða eignina Bjarkavellir 1C
Bjarkavellir 1C
221 Hafnarfjörður
63.7 m2
Fjölbýlishús
211
972 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin