Mánudagur 27. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 27. júlí 2026

Silfurtún 8

FjölbýlishúsSuðurnes/Garður-250
98.1 m2
2 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
55.900.000 kr.
Fermetraverð
569.827 kr./m2
Fasteignamat
43.450.000 kr.
Brunabótamat
57.600.000 kr.
Mynd af Sigurjón Rúnarsson
Sigurjón Rúnarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2001
Jarðhæð af 2
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2253489
Landnúmer
188449
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Samþykkt að mála glugga
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Silfurtún 8, 250 Garður, birt stærð 98.1 fm.
Falleg 3ja herbergja jarðhæð með rúmgóðum sólpalli, sér geymsluskúr og tveimur merktum bílastæðum með rafhleðslustöð á vinsælum stað í Garðinum.

Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og bjarta íbúð á rólegum og fjölskylduvænum stað. Eignin býður upp á tvö rúmgóð svefnherbergi, opið og bjart alrými, suðvestur sólpall, sér geymsluskúr og tvö merkt bílastæði, þar af eitt með rafhleðslustöð. Tilvalin fyrstu kaup.

Nánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, í síma 866-9954, tölvupóstur haukur@allt.is.


Nánari lýsing
Forstofa er með flísum á gólfi og gólfhita sem veitir aukin þægindi.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi og rennihurð sem nýtir rýmið vel.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er opið og vel skipulagt með fallegri eikarinnréttingu, innbyggðum ísskáp og rúmgóðum borðkrók.
Stofa og borðstofa mynda bjart rými með útgengi út á rúmgóðan sólpall sem snýr til suðvesturs.
Baðherbergi er flísalagt með gólfhita, hvítri innréttingu, handklæðaofni og sturtu.
Þvottahús er sér með tengi fyrir þvottavél og þurrkara í góðri vinnuhæð, vaski og góðu geymsluplássi.
Geymsluskúr er 7,2 fm.
Eigninni fylgja tvö merkt bílastæði, rafhleðslustöð í stæði.

Staðsetning
Vinsæl staðsetning í Garði þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttamiðstöð, verslun og aðra helstu þjónustu. Einnig er stutt í falleg útivistarsvæði sem gera staðsetninguna einstaklega aðlaðandi fyrir fjölskyldufólk og útivistarsinna.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/01/202643.450.000 kr.54.000.000 kr.98.1 m2550.458 kr.Nei
23/04/202125.000.000 kr.30.400.000 kr.98.1 m2309.887 kr.
24/11/201512.700.000 kr.14.200.000 kr.98.1 m2144.750 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnabraut 22
Efsta hæð
Skoða eignina Tjarnabraut 22
Tjarnabraut 22
260 Reykjanesbær
106.1 m2
Fjölbýlishús
413
565 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Efsta hæð
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Bjarmastígur 3
600 Akureyri
101.6 m2
Fjölbýlishús
32
590 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Berjarimi 22
Efsta hæð
Skoða eignina Berjarimi 22
Berjarimi 22
112 Reykjavík
89.9 m2
Fjölbýlishús
312
778 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 52
Hleðslustöð
Skoða eignina Áshamar 52
Áshamar 52
221 Hafnarfjörður
93.1 m2
Fjölbýlishús
413
751 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin