Lækjarbakki, 805 Selfoss í landi Búrfells. Lokað svæði (rafmagnshlið), glæsilegt útsýni.
Fasteignaland kynnir: Sumarhús í Lækjarbakka í landi Búrfells og Grímneshreppi. Um er að ræða 86,2 fm sumarhús auk millilofts. Milliloftið er skráð að hluta en er ca. 40 fm að gólffleti. Í þessu húsi er hitaveita (lokað ofnakerfi). Gjöfull er tendur við neysluvatn hússins sem þýðir að aukinn þrýstingur er á vatni.
Fallegt sumarhús sem stendur á 6.928 fm eignarlóð í landi Búrfells í Grímsnes-og Grafningshreppi. Húsið er skráð samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun 86,2 fm. Húsið skiptist í forstofu, baðherbergi, geymslu, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús á jarðhæð auk rúmgóðs svefnlofts.
Dúkur eru á gólfum í forstofu, baði, geymslu og eldhúsi en parket á stofu. Falleg viðarinnrétting er í eldhúsi með vönduðum tækjum. Eldhús er opið inn í stofu með góðri lofthæð. Stofa með parketi á gólfi og kaminu. Útengi er er út á suður sólpall úr stofunni. Baðherbergi er rúmgott, með innréttingu og sturtuklefa. Húsið er er vel um gengið.
Þetta er glæsilegt sumarhús með miklu útsýni. Góð geymsla þar sem gengið er inn af palli en þar eru inntök hússins. Góð aðkoma er að húsinu og næg bifreiðastæði. Búið er að planta talvsert af trjám.
Þetta svæði er lokað með rafmagnshliði (símahlið).
Möguleiki að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 50.000 á ári.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss ogKersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í ca. 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is