Fimmtudagur 20. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 20. ágúst 2026

Haukahlíð 10 - íbúð 130

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
55.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
1.155.515 kr./m2
Jarðhæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532585
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 130. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í nóvember 2026 með fyrirvara um öryggisúttekt.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 47,925,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv. sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina eða sameignarleiðina, sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í okkur í síma 888-0611og fengið allar upplýsingar, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

ATH. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

Skemmtileg og opin 2ja herbergja íbúð á 1. hæð. Birt stærð er 55,3 fm þar af 4,6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðaraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1+

Nánari lýsing: Gengið er beint inn í alrými, eldhús og stofu. Góður fataskápur við inngang. Rýmið er vel skipulagt með gólfsíðum glugga og útgengi á svalir. Ljós eldhúsinnrétting, hvítur quartz-steinn á borðum og blöndunartæki úr burstuðu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting og speglaskápur. Blöndunartæki úr burstuðu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 166 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnar íbúðir í Hlíðarhorni hafa fengið sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum. Kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá tengil að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klapparstígur 1
Skoða eignina Klapparstígur 1
Klapparstígur 1
101 Reykjavík
61.1 m2
Fjölbýlishús
211
1023 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Vífilsgata 4
Opið hús:27. ágúst kl 12:15-12:45
Skoða eignina Vífilsgata 4
Vífilsgata 4
105 Reykjavík
39.6 m2
Fjölbýlishús
21
1098 þ.kr./m2
43.500.000 kr.
Skoða eignina Skúlagata 40
Heitur pottur
Skoða eignina Skúlagata 40
Skúlagata 40
101 Reykjavík
64.8 m2
Fjölbýlishús
211
878 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 10
Skoða eignina Haukahlíð 10
Haukahlíð 10
102 Reykjavík
55.3 m2
Fjölbýlishús
211
1156 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin