Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Rúmgóð 3ja herbergja íbúð í snyrtilegu fjölbýlishúsi að Rúgakri 3b í Akrahverfi, Garðabæ, með
sérinngangi frá fyrstu hæð. Eignin er skráð 142,9 fm. og skiptist í forstofu, Hjónasvítu með fataherbergi, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús, mjög bjart og rúmgott alrými með samliggjandi stofum. Frá stofum er útgengt á
stórar svalir sem snúa til suðvesturs.
Húsið er staðsett í rólegum botnlanga, byggt árið 2008, álklætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulögð stétt og malbikuð bílastæði fyrir framan hús. Sérgeymsla er á jarðhæð sameignar ásamt
sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara.Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veita Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.isNánari lýsing:Forstofa/anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu með þreföldum loftháum fataskáp.
Eldhús: Falleg innrétting með eikar áferð og góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir, kæliskápur og uppþvottavél. Eikarparket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofurnar eru í opnu og björtu alrými með stórum suðurgluggum og eikarparketi á gólfi. Frá stofunni er útgengt á mjög rúmgóðar svalir með fallegu útsýni til suðvesturs.
Hjónasvíta: Rúmgott hjónaherbergi með
fataherbergi. Eikarparket á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi er annað mjög rúmgott svefnherbergi með eikarpaketi á gólfi og loftháum fjórföldum fataskáp.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi búið viðarinnréttingu með handlaug, neðri skúffum og skápum, upphengdum efri skápum. Upphengt salerni, baðkar og ''walk in'' sturta með hertu gleri. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi: Innan íbúðar er þvottaherbergi með hvítri innréttingu, vinnuaðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla: Mjög rúmgóð sérgeymsla er staðsett á jarðhæð, skráð 24,5 fm.
Um er að ræða fallega eign á eftirsóttum stað í Akrahverfi Garðabæjar þar sem stutt er í leikskóla (Akrar), grunnskóla (Hofsstaðaskóla), Fjölbrautaskóla Garðabæjar, verslun og bakarí.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veita Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.isFáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.