Laugardagur 2. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 27. júlí 2025
Deila eign
Deila

Reykjabraut 20, með 3 aukaíbúðum

EinbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
275.9 m2
11 Herb.
7 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
102.900.000 kr.
Fermetraverð
372.961 kr./m2
Fasteignamat
75.550.000 kr.
Brunabótamat
101.100.000 kr.
Byggt 1966
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2212663
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestursvalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Reykjabraut 20, Þorlákshöfn.  Fallegt og mjög mikið endurnýjað 235m2 einbýlishús sem telur 117,5m2 efri sérhæð og 3 AUKA ÍBÚÐIR, tvær á neðri hæð ásamt góðri geymlu og síðan glænýja 2ja herbergja íbúð á lóð.  Verulega góðir tekjumöguleikar eru á útleigu íbúðanna!
Öll efri hæð hússins ásamt stórum hluta í aukaíbúðunum var allt endurnýjað á árunum 2018 og 2019.     

**Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3242**


*  Efri hæðin er laus til afhendingar 1. júní / hinar íbúðirnar eru í útleigu, með lögbundnum uppsagnarfresti.

Steyptur stigi liggur upp á Efri sérhæðina sem telur:
*  Flísalagða forstofu.  Fyrir framan forstofu er góður sérsmíðaður skápur frá Fagus.
*  Mjög fallegt eldhús með nýrri innréttingu með stórri eyju frá Fríform og vönduðum, nýjum heimilistækjum.
*  Rúmgóða stofu og borðstofu.  Utangengt er á góðar svalir (eftir að setja handrið).
* 4 góð svefnherbergi.  Í öllum herbergjum eru nýjir fataskápar frá Fagus.
*  Mjög fallegt, nýupptekið, baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkari með sturtu-þili og flísum á gólfi og veggjum.   
* Þvottahús með vinnuborði.  
** Á efri hæð hússins er búið að endurnýja allar vatnslagnir, allar rafmagnslagnir, allt gler og glugga.  Allar innihurðar eru nýlegar.  Alls staðar er nýtt, fallegt harðparket, nema á blautflötum eru nýjar flísar.  

Á neðri hæð hússins eru tvær, 2ja herbergja, mikið endurnýjaðar íbúðir með sér inngang, sem eru í útleigu.  Íbúðirnar eru einni kjörnar til notkunar fyrir stærri fjölskyldur með efri sérhæðinni:

Íbúð 1 (í útleigu):  Algjörlega endurnýjað baðherbergi með hvítri innréttingu, sturtu og flísum á gólfi og veggjum.  Eldhús með nýrri, hvítri innréttingu. Rúmgott svefnherbergi og stofu.  Nýtt harðparket er á stofu, gangi og eldhúsi.   
Þvottavél er staðsett í eldhúsi.   

Íbúð 2 (í útleigu):  Baðherbergi með nýjum sturtuklefa og flísum á gólfi.  Eldhús með fínni innréttingu.  Þvottavélartengill í eldhúsi.  Rúmgott svefnherbergi með nýjum fataskáp og stofu með nýju harðparketi.  

Góð geymsla, ca 12m2. 

Íbúð 3 (í útleigu): Glæný 2ja herbergja íbúð (merkt bílskúr á teikningum)með fallegri eldhúsinnréttingu, baðherbergi, stofu og stóru svefnherbergi.  


SJÓN ER SÖGU RÍKARI !

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
Sími 483 3424


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/05/202362.100.000 kr.83.000.000 kr.235 m2353.191 kr.
29/03/202142.650.000 kr.55.900.000 kr.235 m2237.872 kr.
14/03/201725.800.000 kr.18.000.000 kr.235 m276.595 kr.
18/03/201024.000.000 kr.20.000.000 kr.235 m285.106 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2023
40.9 m2
Fasteignanúmer
2212663
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heinaberg 23 vel staðs. m tvöf skúr
Bílskúr
Heinaberg 23 vel staðs. m tvöf skúr
815 Þorlákshöfn
224.2 m2
Einbýlishús
614
443 þ.kr./m2
99.300.000 kr.
Skoða eignina Birkivellir 14
Bílskúr
Skoða eignina Birkivellir 14
Birkivellir 14
800 Selfoss
245.3 m2
Einbýlishús
635
391 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Miðengi 1
Bílskúr
Skoða eignina Miðengi 1
Miðengi 1
800 Selfoss
217.3 m2
Einbýlishús
614
487 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Lambhagi 6
Bílskúr
Skoða eignina Lambhagi 6
Lambhagi 6
800 Selfoss
257.8 m2
Einbýlishús
615
388 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin