Föstudagur 12. desember
Fasteignaleitin
Skráð 21. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Klapparstígur 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
177.4 m2
6 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
164.900.000 kr.
Fermetraverð
929.538 kr./m2
Fasteignamat
119.700.000 kr.
Brunabótamat
117.510.000 kr.
Mynd af Heiðar Friðjónsson
Heiðar Friðjónsson
Löggildur Fasteignasali
Byggt 1990
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2003114
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
9
Hæðir í húsi
11
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Upphaflegir
Þak
Búið að skipta um járn og pappa
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Fjórar svalir
Lóð
1,56
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Í SÖLU - KLAPPASTÍGUR 1 - íbúð 901, 3ja herbergja íbúð (177,4 m²) á efstu hæð í lyftuhúsi , í miðbæ Reykjavíkur.  Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni til allra átta, svalir til 3ja átta, stæði í lokaðri bílageymslu, frábært útsýni er úr íbúðinni, út á sundin, yfir höfnina, Viðey, Esjan og fl. og til suðurs yfir stóran hluta af Reykjavík.

Pantið sérskoðun hjá Heiðari í s.693-3356, heidar@valholl.is

Nánari Lýsing:
Tvennar lyftur eru í húsinu og eru einungis 3-íbúðir á þessari hæð. 
Íbúð: Komið er inn í flísalagt anddyri með náttúruflísum á gólfi og rúmgóðum skápum. Stofurnar eru mjög rúmgóðar og bjartar með fallegu fiskibeina parketi á gólfi. Ótrúlegt útsýni er úr stofunum, þar er útgengi út á þrennar svalir sem snúa í suður, vestur og norður. Stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa eru í einu rými. Eldhúsið er rúmgott með fallegri eldri viðarinnréttingu og stein á borðum. Nýleg tæki, ofn, helluborð, innbygðri uppþvottarvél og ískáp og frysti sem fylgja. Náttúruflísar á gólfi og útgengi út á litlar grillsvalir.  Á neðri hæðinni eru svo líka gestasnyrting og búr.
Steyptur stigi upp á efri hæð, klæddur með parketi.
Rúmgott parketlagt hol með fiskibeina parketi á gólfi, herbergi sem hægt er að opna og tengja við holið, með stórum þakglugga.  Mjög rúmgott svefnherbergi með stórum skápum og parketi á gólfi.  Baðherbergi sem búið er að endurgera, rúmgóð walk in sturta, baðkar, innrétting og gluggi.  Þvottarhús með innréttingu, skolvaski og flísum á gólfi. Í holinu eru stórir skápar og úr einum er innangengt í stærra geymslurými sem er undir súðinni.

Í kjallara er sér geymsla sem er 6,3 fm og stæði í bílageymslu, í bílageymslu er hjóla og vagnageymsla og er öll sameign til sérstakrar fyrirmyndar. Húsið við Klapparstíg 1, hefur verið í töluverði endurgerð, m.a þak og steyptir fletir, auk þess sem búið er að skipta út hluta af gluggum og gleri.  Íbúðin hefur fernar svalir, þrjár úr stofu og borðstofu og einar svalir út úr eldhúsi.
Um er að ræða glæsileg rúmgóða "penthouse" íbúð miðsvæðis í Reykjavík með ótrúlega fallegu útsýni. ATH eignin afhendist við kaupsamning.

Allar frekari uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson lögg. fasteignasali í s. 693-3356 og heidar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/02/201663.350.000 kr.82.000.000 kr.187.6 m2437.100 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1995
Fasteignanúmer
2003114
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
55
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.010.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturvin 1 (604)
Opið hús:14. des. kl 14:00-14:30
vesturvin_innfelli_07.jpg
Vesturvin 1 (604)
101 Reykjavík
119.8 m2
Fjölbýlishús
322
1301 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Skoða eignina Klapparstígur 14
Klapparstígur 14
101 Reykjavík
117.5 m2
Fjölbýlishús
312
1378 þ.kr./m2
161.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 404
Bílastæði
Vesturvin V1 íb 404
101 Reykjavík
137.1 m2
Fjölbýlishús
413
1101 þ.kr./m2
150.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjargata 13
3D Sýn
Skoða eignina Sóleyjargata 13
Sóleyjargata 13
101 Reykjavík
128 m2
Fjölbýlishús
412
1168 þ.kr./m2
149.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin