Mánudagur 6. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 6. júlí 2026

Laugarnesvegur 58

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
80.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
904.467 kr./m2
Fasteignamat
68.800.000 kr.
Brunabótamat
41.800.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Geymsla 10m2
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2016919
Landnúmer
104073
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að mestu
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg, björt og töluvert endurnýjuð þriggja herbergja 80,6 fm. rishæð í góðu þríbýli á eftirsóttum stað í Laugardalnum.  Íbúðin er 70,6 fm. og skiptist í opið eldhús, rúmgott alrými með borðstofu og stofu, tvö stór svefnherbergi og baðherbergi.  Þvottahús er staðsett í sameign og sérgeymsla íbúðar á lóð um 10,0 fm. Stór og gróinn sameiginlegur garður.  Eignin getur verið laus í byrjun ágúst / við kaupsamning.

Miklar endurbætur hafa verið framkvæmdar á húsinu á undanförnum árum, m.a. endurnýjun á þaki, gluggum og gleri, skólplögnum, raflögnum og rafmagnstöflu. Á þessu ári verður stigagangur og þvottahús einnig endurnýjað samkvæmt samþykktum framkvæmdum sem greiddar verða úr hússjóði.


KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR


Falleg og vel staðsett eign í rólegu og eftirsóttu hverfi í Laugardalnum. Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla. Líkamsrækt og sundlaug Laugardals í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is

Nánari lýsing: 
 Falleg aðkoma er að húsinu, gengið er inn garðmegin. Íbúðin er björt og vel skipulögð með stórum gluggum í allar áttir. Sameign er snyrtileg og inngangur nýtist að mestu leyti fyrir þessa íbúð þar sem aðrar íbúðir eru með sérinnganga.  Íbúðin er nánast öll með fulla lofthæð og aðeins um 2,3 fm. undir súð (undir 180 cm.)
Forstofa er í opnu holi sem tengir saman helstu vistarverur íbúðar.  Íbúðin á sérafnotarétt af stigapalli við íbúðina á 2. hæð þar sem gott pláss er fyrir útifatnað.
Eldhús er bjart og fallegt með hvítum innréttingum, grárri borðplötu og flísar á milli skápa. Helluborð, bökunarofn, uppþvottavél og gufugleypir.
Borðstofa og stofa er mjög rúmgóð, einstaklega björt og hlýleg.
Svefnherbergin eru tvö, bæði einstaklega björt og rúmgóð.  Stór og góður fataskápur er í hjónaherbergi.  Vegglistaverk í barnaherbergi er gert af listakonunni Zuzanna Gellera.
Baðherbergi er með nýlegri hvítri vaskinnréttingu, sturtubaðkari og góðum opnanlegum glugga. Salerni og nýlegur handklæðaofn, flísar á gólfum og vegg að hluta. 
Þvottahús er staðsett í sameign, hver íbúð með sinn mæli.  Nýlega er búið að flota gólf að hluta en fyrirhugað er að klára flot og múrviðgerðir nú í júlí.  Búið er að samþykkja að lakka gólfið og mála þvottahúsið í haust og búið að ráðstafa fjármunum úr hússjóð í það verkefni.
Garður er stór og gróinn, lóðin um 750 fm. að stærð.
Útigeymsla er skráð 10,0 fm. Öll nýlega tekin í gegn, múrviðgert og málað, einangrað og klætt að innan, nýtt þak, ný útidyrahurð, nýr gluggi, hiti og nýtt rafmagn lögð út í geymslu, hillur sérsmíðaðar inn í rýmið.
Nýlegt harðparket er á gólfum. Baðherbergi flísalagt.

Framkvæmdir og viðhald
2026 verður þvottahús yfirfarið, múrviðgert og gólf flotað. Gluggakistur íbúðar eru nýlega málaðar að innan. Búið er að samþykkja framkvæmd í þvottahúsi og á stigagangi. Þvottahús verður málað og gólf lakkað. Stigagangur verður málaður og teppalagður. Búið er að samþykkja tilboð í bæði málun og teppalögn og verður sú framkvæmd greidd úr hússjóði.
2026 var skólp endurnýjað, settar plastlagnir undir hús og út í götu, nýr brunnur.
2023 var útigeymsla tekin í gegn, múrviðgert og málað, einangrað og klætt að innan, sett nýtt þak (burðarvirki, einangrun, klæðning, þakpappi og þakrennur), ný útidyrahurð, nýr gluggi, hiti og nýtt rafmagn lögð út í geymslu, hillur sérsmíðaðar inn í rýmið.
2021 var veggur í eldhúsi tekinn niður og opnað inn til stofu.  Baðherbergi endurnýjað að hluta, sett ný vaskinnrétting, nýr handklæðaofn, hurð breytt og málað.
2019 var þakjárn endurnýjað og þaksperrur eftir þörfum. Gluggar og gler á austurhlið endurnýjaðir. 
2011 voru gluggar og gler endurnýjaðir, fyrir utan austurhlið og sameign.
2008 voru raflagnir og rafmagnstafla íbúðarinnar ásamt ofnalögnum endurnýjað.

Staðsetning er einstaklega góð og miðsvæðis.  Laugarnes- og Laugalækjarskóli eru í nokkurra mínútna fjarlægð, World Class og sundlaug Laugardals ásamt íþróttasvæði Þróttar og öllu því sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Verslun og þjónusta skammt frá og stutt í stofnbrautir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/11/202039.650.000 kr.43.000.000 kr.80.6 m2533.498 kr.
09/03/201834.400.000 kr.34.900.000 kr.80.6 m2433.002 kr.
06/09/200716.525.000 kr.17.600.000 kr.80.6 m2218.362 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1955
10 m2
Fasteignanúmer
2016919
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
2.850.000 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kambsvegur 23
Opið hús:07. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kambsvegur 23
Kambsvegur 23
104 Reykjavík
93.9 m2
Fjölbýlishús
312
808 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb 406 - Heklureitur
Opið hús:07. júlí kl 18:00-18:30
Laugavegur 168 íb 406 - Heklureitur
105 Reykjavík
97.1 m2
Fjölbýlishús
322
1152 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb 216 - Heklureitur
Opið hús:07. júlí kl 18:00-18:30
Laugavegur 168 íb 216 - Heklureitur
105 Reykjavík
75.7 m2
Fjölbýlishús
312
1055 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb 205 - Heklureitur
Opið hús:07. júlí kl 18:00-18:30
Laugavegur 168 íb 205 - Heklureitur
105 Reykjavík
83.7 m2
Fjölbýlishús
312
1074 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin