Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir. lgf. kynna sérlega fallega og rúmgóða 83 fm. 2ja herbergja í búð á 2. hæð í lyftuhúsi við Löngulínu 15 í Sjálandshverfi í Garðabæ. Húsið hefur fengið gott viðhald og næg bílastæði eru við húsið.
Eignin skiptist í forstofu , stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:Forstofa: með ljósum fataskáp.
Eldhús: með ljósri innréttingu og vönduðum tækjum, ofn í vinnuhæð og innbyggðri uppþvottavél.
Stofa og borðstofa: eru í opnu björtu rými með eldhúsi. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir.
Svefnherbergi: er með rúmgóðum innbyggðum fataskáp.
Baðherbergi: er með ljósri innréttingu, baðkari með sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt hólf í gólf.
Geymsla: 7,4 fm. sér geymsla er í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Gólfefni: harðparket á alrými og flísar á baðherbergi.
Allar
innréttingar eru frá Brúnás
- Hiti í stétt fyrir framan húsið
- Byggingaraðili húsins er Bygg, (byggingarfélag Gylfa og Gunnars).
Frábær staðsetning við sjávarsíðuna þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og leik- og grunnskóli eru í göngufæri.
Nánari upplýsingar veita:Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.