Borg fasteignasala kynnir í einkasölu: Frakkastígur 1 - Upphannaða hringrásarhúsið við sjóinn.
Einstakt hús, einstök hönnun, einstakar íbúðir og einstök staðsetning í höfuðborgininni Reykjavík.
IÐA fasteignir vinnur verkefnið í samstarfi við Sap arkitektar/Lendager og Framkvæmdafélagið Arnarhvol.Frakkastígur 1 - heimasíðaNánari upplýsingar:
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali
844 6447 – gunnlaugur@fastborg.is
Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali
868-2222 - victor@fastborg.is ÍBÚÐ 201Íbúðin snýr að sjónum, hún er neðarlega í húsinu og mannlífið sést vel úr öllum áttum. Listaverkið Sólfarið eftir Jón Gunnar Árnason blasir við er setið er í útskotsglugga norðurhliðar. Þar er einstakt útsýni og tilvalið að tylla sér með bók undir lesljósi.
Eldhúsið er opið og samtengt stofu. Í eldhúsi eru tveir ofnar, hefðbundinn ofn og ofn með val um stillingu á örbylgjueldun eða venjubundna eldun.
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð úr hnotu með stáli í borðplötu og vaski. Eyjan er sérsmíðuð úr stáli, með ávölum brúnum á hliðum og borðplötu sem mætir neðri skápum eyjunnar með fallegri hönnun.
Eldavél er á eyju með innbyggðan háf.
Stofuna pýðir arinn á austurhlið og hefur hver íbúð sér loftun.
Á austurhlið íbúðar eru svalir með útsýni í norðvesturátt að Esju og Móskarðshnúkum.
Hjónasvíta hefur innbyggð veggljós yfir rúmgafli, tvöfölda skápa og þaðan er innangengt á flísalagt baðherbergi með innbyggðum speglaskápum og innréttingu úr granít. Sturta og handlaugartæki eru innbyggð frá Grohe og sturtuhaus er festur í loft.
Gangur íbúðar er klæddur veggpanil úr hnotu sem sameinast eldhúsi auk þess sem fataskápur og setbekkur í anddyri eru einnig úr hnotu. Rúmgott svefnherbergi með skápum er næst anddyri.
Á móti er annað baðherbergi og inn af því er þvottahús. Allir skápar íbúðar er sérsmíðaðir fyrir hvert rými og ná upp í loft. Möguleiki er á þriðja svefnherbergi eða skrifstofu með því að loka hluta stofunnar af.
Íbúðinni fylgir lokaður bílskúr í bílakjallara og inn af honum er geymsla íbúðar
Hæð 2- Herbergi 3–4
- Birt stærð 147,5 m
2- Þar af geymsla 4 m
2- Þar af bílskúr 31 m
2- Arinn Já
- Svalir 4,5 m
2- Þaksvalir Nei
Nánari upplýsingar veita:
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali.
844 6447 – gunnlaugur@fastborg.is
Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali
868-2222 - victor@fastborg.is