VALBORG fasteignasala kynnir: Bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð með suður svölum að Álfheimum 72, 105 Rvík. Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni.
Íbúðin er á 3ju hæð (gengið upp tvær hæðir 1 hæð er jarðhæð) Birt flatamál eignar er 90,7 fm þar af er geymsla 7 fm.
Frábær staðseting þar sem stutt er í Laugardalinn,Laugardalslaug, Glæsibæ, skóla, verslanir og alla helstu þjónustu.
Íbúðin skiptist í stóra og bjarta stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og svefnherbergisgang.
Nánari lýsing:
Stofa/borðstofa: Stór og björt stofa með útgengi á flísalagðar suðursvalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað 2015, hvít falleg innrétting, flísar milli skápa, flísar á gólfi.
Baðherbergi: Sturta, upphengt salerni, hvít innrétting undir vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, endurnýjað á árinu 2015, flísar á gólfi.
Herbergi I: Rúmgott svefnherbergi með góðum skápum, parket á gólfi.
Herbergi II: Parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Góðir skápar, parket á gólfi.
Geymsla: 7 fm geymsla með hillum.
Sameign: Rúmgott þvottahús, hjólageymsla, litil geymsla fyrir dekk.
Hleðslustöðvar hafa verið settar upp á lóðinni.
Á árinu 2015 var
Baðherbergi og eldhús endurnýjað.
Nýjar hurðir frá Birgisson
Dregið var í nýja rafmagnsvírar, rafmagnstafla og innstungur endurnýjaðar.
Gólfefni endurnýjað.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.