Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: Mosgerði 21, 211,7 fm einbýlishús í hverfi 108 Reykjavík.
Eignin skiptist í aðalhæð, kjallara og ris. Möguleiki er að nýta húsið sem eina heildareign eða skipta henni upp og t.d. leigja hluta.
Stór garður er umhverfis húsið. Afar vinsæl staðsetning, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og stutt í alla helstu þjónustu. Skóli, leikskóli, verslanir, heilsugæsla og samgöngur í hæfilegri fjarlægð. Sömu eigendur hafa búið í húsinu frá upphafi og þarfnast eignin viðhalds og endurbóta. Skv. skráningu HMS skiptist eignin í 188,8 fm íbúð og 22,9 fm bílskúr. Íbúð á aðalhæð er skráð 91,6 fm, íbúð í kjallara 65,4 fm og ris 31,8 fm en töluverðir fermetrar eru undir súð. Lóðin umhverfis húsið er leigulóð Reykjavíkurborgar og er lóðin skráð samtals 400 fm. Eignin er skráð á fastanúmer 203-4786 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindum.
Allar nánari upplýsingar veitir:- Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali s.699-6617, katrin@remax.is
Ef þú vilt fá sent SÖLUYFIRLIT - þá endilega senda póst á katrin@remax.isSMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D, Aðalhæð
SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D, Kjallari- 3D - ER EINS OG OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR
- Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í tölvu, síma eða snjalltæki, ferðast auðveldlega á milli herbergja með því að nota músina, örvatakkana á lyklaborðinu eða fingur og kynnt þér rýmið betur
- Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D. Ef þú lendir í vandræðum, endilega að hafa samband við Katrínu í síma 699-6617.
Nánari lýsing:Aðalhæð:Gengið upp nokkrar tröppur inn í aðalanddyri hússins. Þar er hol með tveimur hurðum, önnur upp á rishæðina og hin inn á aðalhæðina. Á aðalhæðinni eru tvö svefnherbergi, stór stofa með samliggjandi borðstofu, salernisaðstaða með sturtu, eldhús og þvottahús.
Rishæð:Rishæð var skv. eigendum gerð upp fyrir um 14 árum síðan og þakið tekið í gegn. Þar er salernisaðstaða, eldhúskrókur og töluvert rými þar fyrir utan. Talsvert óskráð rými er uppi þar sem mikið af fermetrum er undir súð.
Í kjallara:Af aðalhæðinni er stigi niður í kjallara. Kjallarinn hefur einnig sérinngang. Í kjallara eru 2 svefnherbergi, stofa, eldhús, salernisaðstaða, sturtuaðstaða ásamt inntaksrými/geymslu. Lofthæð í kjallara er ekki alls staðar eins, en á bilinu 200-220 cm.
Bílskúr:Bílskúrinn er frístandandi á lóð.
Framkvæmdir:Skv. eigendum þá er húsið ekki allt byggt á sama tíma. Neðri endi hússins var byggður 1963-1964 og er sá hluti allur steyptur. Skv. eigendum var farið í framkvæmdir 2011. Þá var skipt um þak, járn, rennur og glugga í risi og mikið endurnýjað í risinu. Á þeim tíma var líka skipt út einhverjum raflögnum í húsinu og skipt út rafmagnstöflu.
Gallar:Eignin þarfnast viðhalds og endurbóta, bæði að innan sem utan. Einhverjir gluggar eru komnir á tíma en skv. eigendum búið að skipta um einhverja glugga á sl. árum. Pípulagnir í eldhúsi á aðalhæð og á salerninu í kjallara þarnast viðhalds. Gólfhitakerfi er í hluta af aðalhæðinni og þarfnast endurbóta. Stigi á milli aðalhæðar og kjallara hefur rangan halla í þrepunum og þarfnast endurbóta. Bílskúrinn og bílskúrshurðinn þarnast endurbóta. Seljendur hafa látið útbúa ástandsskýrslu og látið mynda skólpið. Nánari upplýsingar hjá fasteignasala.
Allar nánari upplýsingar veitir:- Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali s.699-6617, katrin@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Starfsmanni fasteignasölunnar hefur ekki verið bent á aðra galla á eigninni en fram koma í söluyfirliti þessu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.
Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk