ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu: Skemmtilegt sumarhús á flottum stað við þjóðveginn, í nánd við Laugarvatn og Apavatn. Bústaðurinn liggur við fallega aðgengilega á. Sumarhúsið er byggt árið 1981 og stendur á 5000 fm eignarlóð sem er vel gróin. Eignin er skráð 52,6 fmog skiptist þannig: Hús 43 fm auka tveggja geymslna sem eru 4,8 fm hvor. Húsið er klætt með timbri og járn er á þaki. Við bústaðinn er stór viðarpallur á suður- og vesturhlið. Eignin telur forstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús, þvottahús, svefnloft og geymslu. Nánari lýsing: Að innan er bústaðurinn panelklæddur og gólfefni er parket. Í eldhúsi er falleg sérsmíðuð innrétting með örbylgjuofni og lítilli uppþvottavél. Baðherbergi er með handlaug og salerni. Svefnherbergin eru 2, einnig er svefnloft yfir hluta bústaðarins. Lítil viðbygging er við hliðina á forstofunni og þar er geymsla/búr. Lóðin er mjög þétt og gróin. Geymsluskúrarnir eru 2 og á milli þeirra er viðarpallur, við hann er plast gróðurhús. Skemmtilegur hellulagður lundur er á lóðinni umkringdur trjám. Kalt vatn kemur úr borholu á lóðinnni. Rafmagns-vatnshitari og rafmagns kynding eru í bústaðnum. Góð aðkoma er að húsinu og góð bílastæði. Innbú getur fylgt með í kaupunum.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga. arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.