Miklaborg kynnir: Vel skipulögð og björt 97,8 fm þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð við Orkureitinn. Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi, baðherbergi, tvö góð svefnherbergi, eldhús og opið og bjart alrými. Útgengt út á svalir frá stofu, gott útsýni úr íbúð til norðurs.
Nánari upplýsingar veita Ólafur Finnbogason lgf. í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is, Friðjón Örn Magnússon lgf. í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is og Ingimundur Ingimundarson lgf. í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Forstofa með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu, fallegri innréttingu með hringlaga upplýstum spegli fyrir ofan innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi. Ljós gráar flísar á gólfi og hluta að veggjum. Svört blöndunartæki í sturtu og handlaugartæki við vask.
Eldhús: Falleg hvít innrétting frá GKS. Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél. Parket á gólfi.
Alrými: Eldhús, stofa og borðstofa í alrými eignar. Opin og björt borðstofa og stofa. Frá stofu er útgengt út á norðvestur svalir með útsýni til norðurs. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi. Í hjónaherbergi eru fataskápar. Parket á gólfi.
Sameign: Virkilega falleg sameign. Sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina Excellent. Allar íbúðir við Dalsmúla hafa jafnframt fengið Svansvottun. Hver íbúð hefur jafnramt sitt eigið loftræstikerfi sem hægt er að stilla eftir þörfum og eykur loftgæði og sparar orku um leið.
Nánari upplýsingar veita Ólafur Finnbogason lgf. í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is, Friðjón Örn Magnússon lgf. í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is og Ingimundur Ingimundarson lgf. í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
05/06/2024 | 7.620.000 kr. | 94.900.000 kr. | 97.8 m2 | 970.347 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
108 | 91.2 | 102,9 | ||
108 | 95.7 | 95,9 | ||
108 | 88.9 | 99,9 | ||
108 | 91.2 | 102,9 | ||
108 | 97.8 | 98,9 |