Þriðjudagur 13. október
Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2026

Birkihlíð 24

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
196.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
164.900.000 kr.
Fermetraverð
840.041 kr./m2
Brunabótamat
104.500.000 kr.
Byggt 1982
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20329482
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

*** NÝTT Á SKRÁ - ENDARAÐHÚS Í HLÍÐUNUM ***

Aldir Fasteignir og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali (774 7373 / ragnar@aldirfasteignir.is) kynna einstaklega vel staðsett 168,3 fm. endaraðhús á tveimur hæðum auk 28 fm. bílskúrs á lóð. Alls 196,3 fm. Sólríkur pallur út af stofu og góður grillpallur eldhúsimegin.  Á neðri hæð er forstofa, hol og gestasnyrting, stofa, borðstofa, eldhús, þvottahús og búr.  Á efri hæð er gott stigahol, þrjú herbergi og baðherbergi. Þakjárn og -pappi nýlega endurnýjað
 og rými fyrir þrjá bíla í innkeyrslu. Fágætt tækifæri til að eignast raðhús í þessu vinsæla hverfi. 

Falleg aðkoma er að húsinu, komið inn í rúmgóða forstofu með góðum skápum og áfram inn í hol.  Til vinstri er gestasnyrting, sem hefur verið endurgerð og áfram inn í rúmgott eldhús með stórri innréttingu og hlýlegum borðkrók.  Gott þvottahús er inn af eldhúsi og búr inn af því.  Til hægri úr forstofu eru tvö þrep niður í stórar og bjartar stofur.  Þar er fallegur arinn og gengið út á skjólsælan og sólríkann pall til suðurs.  Úr holi er stigi upp á efri hæð hússins.

Komið er upp í rúmgott stigahol.  Í teikningu er þar 4. herbergið en nú er þar rúmt pláss og stór fataskápur.  Gott hjónaherbergi er á hæðinni og þar eru jafnframt fataskápar.  Tvö rúmgóð barnaherbergi eru á hæðinni auk baðherbergis þar sem eru bæði baðkar og sturtuklefi.  Inn af baðherbergi er rými sem í teikningu er hugsað fyrir gufubað en ekki verið nýtt sem slíkt.  Öll herbergin eru hlýleg og björt og að hluta undir súð.  Úr hjónaherbergi er gengið út á suðursvalir.

Parket á stofum en flísar á öðrum gólfum neðri hæðar. Parket á stiga og efri hæð, nema baðherbergi sem er flísalagt. 

Bílskúrinn er tvískiptur, með léttum vegg og verið nýttur sem geymsla og unglingaherbergi.  Nýir eigendur geta auðveldlega lagað hann að sínum þörfum.
 
Húsið, sem byggt er árið 1982, ber augljós merki um smekkvísi og góða umgengni. Árið 2018 var skipt um þakjárn og -pappa á húsinu og það jafnframt gert á bílskúrnum s.l. sumar og þakkantur endurbættur. 

Vel staðsett hús í vinsælu hverfi, þar sem veðursældar nýtur.  Á seinustu árum hafa aðeins fáein þessara húsa skipt um eigendur og því um fágætt tækifæri að ræða.

Áhugasamir bóki skoðun - Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða ragnar@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðalækur 73
Bílskúr
Skoða eignina Rauðalækur 73
Rauðalækur 73
105 Reykjavík
180,3 m2
Hæð
613
848 þ.kr./m2
152.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Smyrilshlíð 15
102 Reykjavík
89,1 m2
Fjölbýlishús
211
915 þ.kr./m2
81.500.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 17 (504)
Bílastæði
Efsta hæð
Breiðhöfði 17 (504)
110 Reykjavík
180,2 m2
Fjölbýlishús
423
1220 þ.kr./m2
219.900.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
52 m2
Fjölbýlishús
211
960 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin