Mánudagur 9. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 9. nóv. 2026

Þiljuvellir 19

EinbýlishúsAusturland/Neskaupstaður-740
167.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.000.000 kr.
Fermetraverð
311.005 kr./m2
Fasteignamat
46.350.000 kr.
Brunabótamat
84.340.000 kr.
Mynd af Elín Káradóttir
Elín Káradóttir
Byggt 1956
Geymsla 18m2
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2169834
Landnúmer
155852
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt/ekki vitað
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Frárennslikerfi endurbætt 1976. Frárennsli frá geymslu og niðurföllum á palli tengt við kerfið 1986.
Gluggar / Gler
Búið að skipta um glugga á suðurhlið og norðurhlið. Gott að skoða.
Þak
Þak og utanhússklæðning endurnýjuð 1986
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Miðstöð og ofnar endurnýjað 2025
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
ATH - ekki tæmandi talning: Skoða þarf ástand á gluggum, sér í lagi hringlaga gluggum í stofu. Rakaúrfellingar eru í lofti í geymslu í kjallara.
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ÞILJUVELLIR 19, 740 Neskaupstaður. Einbýlishús á pöllum.
Húsið getur verið laust til afhendingar við kaupsamning. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er steypt, byggt árið 1956, 149.2 m², ásamt sambyggðri geymslu byggð árið 1986, 18 m², samtals 167.2 m² að stærð samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
Skipulag;
Hæð (mið pallur): Forstofa, skáli, eldhús, baðherbergi, gestasnyrting og þvottahús. 
Hæð (efri pallur): Stofa og borðstofa, herbergi.
Hæð (neðri pallur): Þrjú herbergi og inntaksrými(miðstöð). 

Nánari upplýsingar í söluyfirliti hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing; 
HÆÐ (mið pallur):
Forstofa, flísar á gólfi og fataskápur, inn af forstofu er gestasnyrting. Frá forstofu er gengið inn í skála.
Gestasnyrting, handlaug og salerni, flísar á gólfi. Þvottahús, málað gólf, tengi fyrir tvær vélar, gluggi. 
Skáli, parket á gólfi, steyptur stigi liggur frá skála upp og niður. 
Eldhús, innrétting, eldavél, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur fylgt en seljandi ber ekki ábyrgð á virkni tækja), borðkrókur. 
Geymsla, parket á gólfi, hillur, gluggi og flísar á veggjum. Lúga upp á loft. 
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting og skápar, upphengt salerni og sturtuklefi, handklæðaofn og gluggi. 

HÆÐ (efri pallur): 
Stofa og borðstofa, parket á gólfi.
Herbergi, parket á gólfi.

HÆÐ (neðri pallur): 
Herbergi I, hjónaherbergi, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi
Herbergi II, inn af hjónaherbergi, plastparket á gólfi, fataskápur.
Herbergi III, plastparket á gólfi, fataskápur. 
Inntaksrými (miðstöð) Steypt gólf og niðurfall. 
Geymsla er við hlið hússins, gengið inn frá garði neðan við húsið. Gólf ómálað, vinnuborð og hillur, vaskur, rafmagn. Í geymslu er aðeins kalt vatn.
Innra skipulagi hússins hefur verið breytt lítilsháttar frá upprunalegum teikningum. 

ÞILJUVELLIR 19 er staðsteypt pallahús byggt árið 1956. Húsið er klætt að utan með bárujárnsklæðningu, einhalla þak með bárujárni. Timburgluggar og hurðar.  
Steypt stétt er framan við húsið að inngangi. Möl er í bílastæði. Verönd er ofan á þaki geymslu, skjólveggir eru á verönd. Lóð er gróin. 
Lóð er  594 m² leigulóð í eigu Fjarðabyggðar, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 16.08.1957, skjal nr. 428-N-0D1229/1957.

Til athugunar um ástand húss:
** Árið 1976 var unnið að endurbótum á frárennslikerfi hússins.
** Árið 1979 var eldhúsinnrétting endurnýjuð. 
** Árið 1986 voru þak og utanhússklæðning endurnýjuð.
** Árið 1986 var frárennsli frá geymslu og niðurföllum á palli tengt við frárennslikerfi hússins.
** Árið 2025 voru miðstöð og ofnar endurnýjuð.
** Þakið er steypt að undanskildum þakhlutanum yfir skálanum, sem byggður var við húsið. 

 Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-9834 Þiljuvellir 19, Fjarðabyggð.

Stærð: Íbúð 149.2 m². Geymsla 18  m² Samtals 167.2 m².
Brunabótamat: 84.340.000 kr
Fasteignamat: 46.350.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 47.400.000 kr. 
Byggingarár: Íbúð 1956. Geymsla 1986.
Byggingarefni: Steypa.
Eignarhald:
01 0101 Íbúðarherb í kjall 59.2 Brúttó m². 
01 0201 Íbúð á hæð 90 Brúttó m².
02.0101 Geymsla 18 Brúttó m²​​​​​​.
Landeignanúmer: L155852. Íbúðarhúsalóð 594.0 m².

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1986
18 m2
Fasteignanúmer
2169834
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.390.000 kr.

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurbraut 3
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Austurbraut 3
Austurbraut 3
780 Höfn í Hornafirði
182,1 m2
Einbýlishús
614
455 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Ránarslóð 16
Bílskúr
Skoða eignina Ránarslóð 16
Ránarslóð 16
780 Höfn í Hornafirði
166,7 m2
Einbýlishús
412
395 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Höfðavegur 7
Bílskúr
Skoða eignina Höfðavegur 7
Höfðavegur 7
780 Höfn í Hornafirði
127,1 m2
Einbýlishús
514
408 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heiðarbraut 5d
230 Reykjanesbær
175,2 m2
Raðhús
715
490 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin