Föstudagur 11. september
Fasteignaleitin
Skráð 11. sept. 2026

Flétturimi 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
74.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
848.853 kr./m2
Fasteignamat
56.750.000 kr.
Brunabótamat
41.250.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1991
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2040098
Landnúmer
109525
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Þak
endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnotareitur í suður/vestur
Lóð
2,5
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með skjólgóðri og afgirttri timburverönd við Flétturima 12 í Grafarvogi. Um er að ræða vel skipulagða eign sem skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Frá stofu er útgengt á afgirta timburverönd sem liggur bæði til suðurs og vesturs og nýtur sólar stóran hluta dags og fram á kvöld. Eignin er staðsett á fjölskylduvænum stað í Rimahverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Birt stærð eignar skv. HMS er 74,1 m², þar af er íbúðin 69,3 m² og sérgeymsla í kjallara 4,8 m². Eigninni fylgir jafnframt sérafnotaflötur vestan við húsið og meðfram vesturhlið íbúðarinnar.

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM - FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Nýlega endurnýjað á smekklegan hátt. Hvít innrétting með góðu skápaplássi og viðarborðplötu, og flísar á gólfi. Eldhúsið er opið við borðstofu og tengist stofu á skemmtilegan hátt.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með góðu plássi fyrir bæði setustofu og borðstofu. Frá stofu er útgengt á skjólgóða og afgirta timburverönd sem snýr vel til sólar..
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott barnaherbergi með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með mjög góðu skápaplássi, eftir heilum vegg og parketi á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, hvítri innréttingu og spegli. Aðstaða er fyrir þvottavél innan baðherbergis.
Geymsla: Eigninni fylgir sérgeymsla staðsett á sameignargangi í kjallara skráð 4,8 m² að stærð.

Húsið, sameign og lóð
Húsið er hluti af fjölbýli við Flétturima 10–16 sen er steinsteypt fjölbýlishús á þremur hæðum auk kjallara. Í húsinu eru fjórir stigagangar, samtals 24 íbúðir, sex í hverjum stigagangi. Í kjallara eru sérgeymslur íbúða, sameiginlegt lokað bílskýli með 14 bílastæðum, sorpgeymslur og hitaklefar. Á 1. hæð eru jafnframt sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur. Lóðin sem er sameiginleg er vel hirt og gróin. Á lóðinni eru samtals 48 bílastæði, þar af 34 utandyra og 14 í sameiginlegu bílskýli í kjallara hússins. 

Endurbætur og viðhald á íbúð að sögn seljanda:
Eldhús endurnýjað að mestu í nóvember 2023.

** HVERS VIRÐI ER ÞÍN EIGN? SMELLTU HÉR **

Nýlegar framkvæmdir við húsið að sögn seljanda og húsfélags
2024–2025 – Þak hússins endurnýjað að mestu, m.a. hluti af þakpappa og þakjárni.
2024–2025 – Þakgluggar endurnýjaðir.
2026 – Skipt um glugga og gler þar sem komin var þörf á endurnýjun.
2026 – Húsið sprunguviðgert og málað.
2026 – Framkvæmdir við húsið eru nú á lokastigi.

Staðsetning
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með skjólgóðri og sólríkri timburverönd á góðum og fjölskylduvænum stað í Rimahverfi í Grafarvogi. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir, þjónustu og íþrótta- og útivistarsvæði. Göngu- og hjólaleiðir eru í næsta nágrenni og hverfið býður upp á gott og barnvænt umhverfi.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / Tel: +354 856 5858
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/09/202552.500.000 kr.18.975.000 kr.74.1 m2256.072 kr.Nei
05/05/202033.250.000 kr.37.200.000 kr.74.1 m2502.024 kr.
08/04/201113.950.000 kr.18.000.000 kr.74.4 m2241.935 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Steinhöfði 4
Opið hús:12. sept. kl 14:00-14:30
Steinhöfði 404.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
93.8 m2
Fjölbýlishús
413
948 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 2
Opið hús:12. sept. kl 14:00-14:30
Steinhöfði 203.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 2
110 Reykjavík
70.9 m2
Fjölbýlishús
211
958 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 4
Opið hús:12. sept. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
93.8 m2
Fjölbýlishús
413
948 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 11A
Skoða eignina Jöfursbás 11A
Jöfursbás 11A
112 Reykjavík
55.4 m2
Fjölbýlishús
312
937 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin