Guðrún Antonsdóttir fasteignasali og Lind fasteignasala kynna:
Björt, falleg og einstaklega vel skipulögð nýleg 4ra herbergja íbúð á 3.hæð ásamt bílskúr í bílastæðahúsi með rúmgóðu bílastæði fyrir framan.
Áætlað fasteignamat eignar fyrir 2026 er 117.050.000krEignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Auk bílskúrs með bílastæði fyrir framan
Nánari lýsing:Forstofan er mjög rúmgóð, með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með vandaðri hvítri Nobilia innréttingu frá GKS með efri og neðri skápum.Vönduð eldhústæki, sjálfhreinsandi bakaraofn í vinnuhæð og sér combi ofn, sem er bæði bakaraofn og örbylgjuofn. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Span helluborð með innbyggðum gufugleypi. Fallegur kvarts steinn frá S.Helgasyni er á borðum, milli skápa og á hliðum innréttingar og eyju.
Stofan er björt og opin inn í eldhús. Parket á gólfi. Gengið er út á rúmgóðar sólríkar svalir frá stofu sem snúa til suðurs inn í stóran inngarð.
Svefnherbergin eru þrjú, öll mjög rúmgóð með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergið er með góðri innréttingu undir handlaug, walk in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum. Blöndunartæki eru vönduð og öll frá Tengi.
Þvottahús er innan forstofu með flísum á gólfi. Stálvaskur og gluggi með opnanlegu fagi.
Sérgeymsla er innan bílskúrs
Bílskúr 23,6fm, er inn í lokuðu bílastæðahúsi. Sjálfvirkur hurðaopnari og vaskur með heitu og köldu vatni. Bílskúrinn er á góðum stað í bílakjallaranum en gengið er inn í stigaganginn við hliðina á bílskúrnum. Bílastæðið fyrir framan bílskúrinn er einstaklega rúmgott og notar núverandi eigandi það fyrir tvo bíla.
Garður: Glæsilegur og vel hannaður sameiginlegur garður er í húsinu með fjölbreyttum leiktækjum, æfingartækjum, bekkjum og grænum svæðum.
Samkvæmt fasteignamati ríkisins er íbúð á hæð skráð 118,5fm, geymsla 6,3 fm og bílskúr 23,6. Samtals 148,4 fm, ásamt bílastæði fyrir framan bílskúr
Frekari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma 621-2020 eða á gudrun@fastlind.is