Fasteignasalan TORG kynnir: Fallega og vel skipulagða 97,3 fm 3-4ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi og rúmgóðri timburverönd við Reyrengi 4, 112 Reykjavík ásamt sérmerktu bílastæði í opinni bílageymslu. Allar upplýsingar veitir Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða Gunnar@fstorg.isNánari lýsing:Anddyri: Flísar á gólfi og fatahengi.
Eldhús: er með snyrtilegri innréttinu, tengi fyrir uppþvottavél,helluborð er á borðplötu ásamt háfi, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir ísskáp.
Stofa/borðstofa: er einstaklega björt, útgengt út á
suðvestur verönd, inn af stofu væri hægt að útbúa rúmgott
svefnherbergi en er í dag partur af stofunni.
Hjónaherbergi: parket á gólfi með góðum skápaplássi.
Barnaherbergið: parket á gólfi ásamt fataskáp
Baðherbergið: er með flísum á gólfi, baðkari með sturtuaðstöðu, handlaug, salerni, ásamt tengi fyrir
þvottavél og þurrkara. Sameign: Á jarðhæð eru
sér geymslur fyrir hverja íbúð, geymsla merkt
0108 sem tilheyrir þessari eign er 4,7 fm. Einnig er
rúmgóð vagna- og hjólageymsla ásamt sameiginlegri geymslu fyrir húsið.Allar upplýsingar veitir Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða Gunnar@fstorg.isUm er að ræða snyrtilega vel staðsetta eign á barnvænum stað. Göngufæri er í leik- og grunnskóla, ásamt Borgarholtsskóla og alla helstu verslunar- og heilbrigðisþjónustu við Spöngina í Grafarvogi. Frábærar gönguleiðir eru í næsta nágrenni ásamt margskonar íþróttastarfsemi og afþreyingu í Egilshöll. Þetta er eign sem vert er að skoða.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.