Laugardagur 5. september
Fasteignaleitin
Skráð 4. sept. 2026

Ísleifsbúð 17, með bílskúr

RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
153.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.200.000 kr.
Fermetraverð
527.615 kr./m2
Brunabótamat
91.900.000 kr.
Byggt 2020
Sérinng.
Fasteignanúmer
250775849
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Ísleifsbúð 17, 815  Þorlákshöfn.  Stórglæsilegt miðjuraðhús með 3  stórum svefnherbergjum ásamt  bílskúr.
Eignin er vel staðsett í Þorlákshöfn. Stutt er í grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði og sundlaug. 

** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Eignin telur:

*  Mjög góða, flísalagða forstofu með skáp. Úr forstofunni er innangengt í bílskúrinn. 
*  Eldhúsið er afar fallegt, með hvítri innréttingu og eyju með góðum hirslum og spanhelluborði. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Gráar flísar á gólfi 
*  Glæsilega borðstofu og stofu með stórum gluggum sem hleypa mikili birtu inn.  Harðparket á gólfi.
*  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
*  3  stór svefnherbergi.  Góðir fataskápar í tveimur af þremum  herbergjum og harðparket á gólf.  
*  Fallegt baðherbergi með hvítri innréttingu undir vask og glerskáp fyrir ofan, upphengt wc og gráar flísar á wc kassa,  og sturtu úr glerþili.  Flísar á gólfi og á vegg í sturturými.
*  Gott þvottahús með hvítri innréttingu með skolvask og vinnuborði.  
*  Góður bílskúr með flísum á gólfi.
*  Gluggar ná niður í gólf í stofu og herbergjum.

*  Bílaplanið er steypt.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
Sími 483 3424

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Super 1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasala Suðurlands
http://eignin.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 25 (605)
Opið hús:06. sept. kl 15:15-15:45
IMG_9057.JPG
Hringhamar 25 (605)
221 Hafnarfjörður
150.5 m2
Fjölbýlishús
42
863 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Opið hús:06. sept. kl 15:15-15:45
Screenshot 2026-07-17 at 16.18.54.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
152.8 m2
Fjölbýlishús
524
717 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Skoða eignina Sólvellir 4
Mánatún 3.jpg
Skoða eignina Sólvellir 4
Sólvellir 4
806 Selfoss
152.4 m2
Sumarhús
324
636 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Björkurstekkur 77
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:05. sept. kl 13:00-13:30
Björkurstekkur 77
800 Selfoss
272.7 m2
Einbýlishús
524
550 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin