Sunnudagur 9. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:09. nóv. kl 13:00-14:00
Skráð 7. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Vetrarbraut 2-4 íb405

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
166.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
214.900.000 kr.
Fermetraverð
1.292.243 kr./m2
Fasteignamat
53.100.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Lilja Ragnarsdóttir
Lilja Ragnarsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2025
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534907
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
tvennar
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
1 - Byggingarleyfi
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Fasteignasalan TORG kynnir: Loft-gæði / Hljóð-gæði / Birtu-gæði!  KYNNUM: Nýtt fjölbýlishús í nýju og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði, Garðabæ. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, í svansvottunarferli, með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við  Margréti Rós, fasteignasali í GSM: 856-5858 eða margret@fstorg.is

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR


Nánari lýsing: Um er að ræða Glæsilega 3ja herbergja íbúð á efstu hæð með tvennar svalir, bílskúr og tvö bílastæði. Íbúð merkt:0405, og skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 166,3fm að stærð á 4. og efstu hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 134,4fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á tvennar svalir, 2 svefnherbergi, tvö baðherbergi, sér þvottaherbergi og rúmgóðum bílskúr, skráður 24,6fm, merktur 0031, auk geymslu í sameign merkt: 0030, skráð 7,3fm. ásamt bílstæði í bílakjallara merkt: B62.   Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Lilju Ragnarsdóttir, fasteignasali í GSM: 663-0464 eða lilja@fstorg.is   

Almennar upplýsingar 
Vetrarbraut 2 - 4. er tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarði. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum. Húsið er með tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallara. Samtals eru 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli. Sjá nánar skilalýsingu*

Utanhússfrágangur
Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

Innanhússfrágangur  4 hæð:
Sérsmíðaðar Voke III spónlagðar eikar innréttingar með innfelldum gripum,
Kvarts steinn á borðplötum. Vönduð tæki eru í eldhúsi; innbyggður Siemens ísskápur, uppþvottavél. Gaggenau ofn og sambyggður ofn/örbylgjuofn (Combi ofn) í vinnuhæð, helluborð með innbyggðri viftu. Eldhús- og blöndunartæki að vandaðri gerð. Íbúðin skilast án gólfefna utan baðherbergja og þvottahús sem skilast flísalögð.
Almennt um 4 hæð: Rými eru hönnuð með áherslu á loftgæði, hljóðvist og náttúrulega birtu. Hver íbúð hefur loftskiptikerfi sem stjórnað er innan íbúðar, slíkt eykur loftgæði og stuðlar að heilnæmu innilofti. Húsið er klætt flísum og álkæðningu, slétt og bára. klæðningar eru í mismunandi litum, náttúrulegum jarðlitum sem tengir bygginguna umhverfinu, lögð er áhersla á að húsin séu viðhaldslétt, flísar og álklæðningar og ál/tré gluggar.

Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

Tæki og búnaður
Eldhústæki frá Gaggenau: Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

Sameignir:
Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

Hönnun og framkvæmdir
Arkitektar: Arkís arkitektar.
Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
Sjá nánar skilalýsingu*
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2534907
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B6
Númer eignar
2
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb401
Bílskúr
Bílastæði
Opið hús:09. nóv. kl 13:00-14:00
Vetrarbraut 2-4 íb401
210 Garðabær
176.9 m2
Fjölbýlishús
322
1300 þ.kr./m2
229.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Bílskúr
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
176.4 m2
Fjölbýlishús
322
1247 þ.kr./m2
219.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1 - íb 301
Bílskúr
Vorbraut 1 - íb 301
210 Garðabær
176.4 m2
Fjölbýlishús
312
1247 þ.kr./m2
219.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 (401)
Bílastæði
Vetrarbraut 2 (401)
210 Garðabær
173.3 m2
Fjölbýlishús
322
1327 þ.kr./m2
229.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin