Til leigu 1.275 m² nýtt verslunar- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð við Arnarhlíð 8 í Reykjavík. Laust strax.
Hæðin er óinnréttuð í dag og hefur ekki verið hólfuð niður en hægt er að skipta hæðinni upp og leigja rými allt niður í 100 m².
Stórir verslunargluggar eru á allri hæðinni. Sér inngangur verður á öllum rýmum. Leigusali mun innrétta húsnæðið fyrir væntanlegan leigjanda.
Húsnæðið gæti hentað sem verslunarhúsnæði, skrifstofur og fyrir ýmsa aðra starfsemi.
Bílastæði eru í lokuðu bílastæðahúsi á hæðinni fyrir starfsfólk og vörumóttöku og er áætlað að eitt stæði fyrir hverjum 100 m².
Möguleiki er á að leigja húsnæðið án vsk.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Helga Má Karlsson, löggiltan fasteignasala í síma 897-7086, helgi@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.