Laugardagur 15. mars
Fasteignaleitin
Skráð 13. mars 2025
Deila eign
Deila

Egilsbraut 19 bílsk og 2-3 herb

FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
127.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
540.392 kr./m2
Fasteignamat
50.500.000 kr.
Brunabótamat
56.320.000 kr.
Byggt 1998
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2235061
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
endurnýjaðar
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður svalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Egilsbraut 19, Þorlákshöfn, íbúð merkt 0201.  Vel staðsetta 3-4ra herbergja íbúð í fallegu fjórbýlishúsi ásamt bílskúr.  Íbúðin er einstaklega vel staðsett skammt frá skóla, leikskóla og íþróttasvæði !  Einnig er stutt í þjónustuhús eldri borgara.   

*  Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com*

*  Eignin telur:
*  Rúmgott anddyri með flísum á gólfi.
*  2 rúmgóð svefnherbergi með dúk á gólfi.  Fataskápar eru í báðum herbergjum. 
*  Bjarta og fallega stofu og borðstofu með plastparketi á gólfi.  Stórir gluggar snúa í hásuður og hleypa fallegri birtu inn í rýmið.
*  Úr stofunni er utangengt á svalir sem snýr í há-suður.
*** Á mjög einfaldan hátt er hægt að loka af borðstofuna og bæta við 3ja svefnherberginu ! 
*  Mjög rúmgott eldhús með hvítri innnréttingu. 
*  Baðherbergi með hvítri innréttingu, sturtuklefa og baðkari.  Flísar á gólfi. 
*  Gott þvottahús.
*  Stóra geymslu á jarðhæð. 

*  Fullfrágenginn bílskúr með rafmagni og köldu vatni.  

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveita
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1999
26.6 m2
Fasteignanúmer
2235061
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.020.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasala Suðurlands ehf.
https://www.eignin.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Egilsbraut 19 frábær staðsetn !
Bílskúr
Egilsbraut 19 frábær staðsetn !
815 Þorlákshöfn
120.1 m2
Fjölbýlishús
312
548 þ.kr./m2
65.800.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 41
Skoða eignina Núpahraun 41
Núpahraun 41
815 Þorlákshöfn
104.6 m2
Raðhús
413
668 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 41
Skoða eignina Núpahraun 41
Núpahraun 41
815 Þorlákshöfn
104.6 m2
Raðhús
413
668 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 41
Skoða eignina Núpahraun 41
Núpahraun 41
815 Þorlákshöfn
104.6 m2
Raðhús
413
668 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin