Einstakt útsýni af 4. hæð - Svalir með útsýni og endurnýjað baðherbergiBaldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Hamraborg 18 í hjarta Kópavogs. Úr íbúðinni er fallegt útsýni yfir sjóinn, að Perlunni og til fjalla, og frá stofu er útgengt á stórar svalir. Baðherbergið hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt og íbúðinni fylgir aðgengi að sameiginlegri bílageymslu undir húsinu. Öll helsta þjónusta, verslanir, sundlaug, heilsugæsla, banki, leiskóli og skólar, menning og almenningssamgöngur eru í nokkra mínútna göngufæri.
Stærð eignarinnar er 76,90 fermetrar samkvæmt skráningu HMS.
Aðal sölupunktar:- 4. hæð í lyftuhúsi með fallegu útsýni
- Stórar svalir út frá stofu
- Endurnýjað baðherbergi með baðkari, vegghengdu salerni og handklæðaofni.
- Tvö svefnherbergi og gott skápapláss í holi
- Björt stofa og borðstofa með stórum gluggum
- Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi
- Aðgengi að sameiginlegri bílageymslu undir húsinu
- Hjóla- og vagnageymsla í sameign
- Krónan, Salurinn, Gerðarsafn og skiptistöð Strætó í göngufjarlægð.
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla í kjallara og hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu og bílageymslu.
Nánari lýsing:Forstofa: Fatahengi og skóhilla.
Hol: Stórir fataskápar og harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð í samliggjandi rými með stórum gluggum og harðparketi á gólfi. Útgengt er á stórar svalir með fallegu útsýni.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél og gluggi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi og glugga með útsýni.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og gluggi með útsýni til fjalla.
Baðherbergi: Endurnýjað með stórum flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu og gleri, vegghengt salerni, innrétting með skúffum, spegill með lýsingu, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Hellulagður og gróinn garður á milli húsa. Bílageymsla undir húsinu.
Sameginlegar
hleðslustöðvar eru í bílakjallara.
Húsið: Hamraborg 18 er steinsteypt lyftuhús byggt 1973.
Staðsetning: Hamraborg er miðbær Kópavogs. Krónan er við hornið og í göngufæri eru Salurinn, Gerðarsafn, Bókasafn Kópavogs, Sundlaug Kópavogs, leikskólar og grunnskóli. Strætó er í Hamraborg og greið leið er í allar áttir á höfuðborgarsvæðinu.
Björt og vel skipulögð íbúð með útsýni á einum þægilegasta stað Kópavogs. Hentar vel fyrstu kaupendum, pörum og þeim sem vilja minnka við sig og hafa alla þjónustu við höndina.
Nánari upplýsingar veitir:Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Greiðslumat.is -
Að selja hjá Baldri