LIND fasteignasala & Páll Konráð kynna í einkasölu: Glæsileg og nýuppgerð 4-5 herbergja endaíbúð á 4 (efstu hæð) í vel við höldnu húsi með rúmgóðum bílskúr og suður svölum. Möguleiki er að bæta við fjórða svefnherberginu. Þvottahús er innan íbúðar. Snyrtilegt hús og íbúð á eftirsóttum stað í borginni.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
- Íbúðin var öll tekin í gegn árið 2022 og fylgir henni 21,4 fm bílskur, íbúð skráð 109,8. Samtals: 131,2 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Stofa / Borðstofa : mjög rúmgóðar með harðparketi á gólfi, útgengt út á suður svalir. Á teikningu er aukaherbergi í stofurými sem búið er að taka niður, möguleiki á að færa í fyrra horf.
Eldhús: glæsileg og ný innrétting, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, bakaraofn og spanhelluborð. Harðparket á gólfi. Búið er að stækka hurðargat á milli eldhús og borðstofu.
Hjónaherbergi: með góðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Herbergi: rúmgott með harðparketi á gólfi.
Herbergi: með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: með nýjum sturtuklefa, innrétting við vask, glæsilegar TERRAZZO flísar á gólfi og veggjum að hluta, gluggi á baði.
Þvottahús/ geymsla: innan íbúðar með TERRAZZO flísum á gólfi.
Bílskúr: með rafmagni, heitu og köldu vatni og sjálfvirkum hurðaopnara.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla.
Framkvæmdir:
2020/2021: Skipt um útidyrahurð á stigagangi.
2022: - Nýtt parket frá ÁLFABORG. - NÝJAR TERRAZZO flísar á baði, þvottahúsi og eldhúsi frá ÁLFABORG. - Ný innrétting í eldhúsi ásamt heimilistækjum. - Endurnýjað baðherbergi. - Ný blöndunartæki í eldhúsi og sturtu (GRÖHE), handvaskur inn á baði frá MAXIMA - ný ljós og tenglar. - Barnaherbergi stækkað. - Nýjar inni hurðir frá PARKA. - Nýr dyrasími.
2022/2023: Ofnar í hjónaherbergi, baðherbergi og eldhúsi endurnýjaðir.
2023: Nýr fataskápur í hjónaherbergi. - Sérsmíðaðar gardínur ásamt myrkvatjöldum í herbergjum.
2024: Endurnýjað glugga og svalaeiningu á suðurhlið.
- Gardínur og myrkvatjöld frá Z-brautum fylgja með.
Glæsileg íbúð á þessum frábæra stað þar sem stutt er í fjölbreytta verslun, skóla, þjónustu og menningu. Auk þess er stutt göngufæri í fallegar gönguleiðir í Fossvogi, Öskjuhlíð og við Nauthólsvík.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.