Kasa fasteignir 461-2010.
Pílutún 7 - Vönduð og falleg 3 herbergja 138,3 fm íbúð í raðhúsi á einni hæð með innbyggðum bílskúr á góðum stað í Naustahverfi.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Forstofa: Flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Eldhús: Eldhúsinnrétting er vönduð og falleg, spónlögð eik, eyja og gott skápapláss, bakaraofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Parket á gólfi og frá eldhúsi er farið út á rúmgóða verönd í vestur.
Stofa: er með parekti á gólfi og frá stofu er farið út á verönd til austurs.
Svefnherbergi: Eru tvö, parket á gólfum og fataskápar í þeim báðum.
Baðherbergi: Er rúmgott. Flísar á gólfi og veggjum að mestu, handklæðaofn, upphengt WC, góð innrétting, hornbaðkar og stór sturta.
Geymsla: Er á milli þvottahúss og bílskúrs. Þar eru flísar á gólfi. Möguleiki á að nýta rýmið sem herbergi eða skrifstofa. Gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottahús: Flísar á gólfi og innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur í bekkplötu.
Bílskúr: Flísar á gólfi og gott skápapláss og hillur.
Annað:
- Gólfhiti í íbúð.
- Gott skápapláss og vandaðar innréttingar.
- Innfelld lýsing í alrými og baðherbergi.
- Snjóbræðsla er í gangstétt og bílaplani vestan við húsið.
- Ryksugukerfi er í íbúðinni sem fylgir með við sölu.
- Fyrirhugað fasteignamat 2027: 97.200.000.-
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.