Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 39, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 03-01.Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð í fjögurrahæða fjöleignarhúsi, íbúðin er ein á efstu hæðinni. húsið er steinsteypt og byggt árið 1964. Samtals stærð eignar er 128,5 M2 og skiptist í forstofu, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og geymslu. Íbúðin var nýlega öll máluð og parket endurnýjað. Nánari Lýsing: Forstofa, stofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og geymsla.
Forstofa: komið er inn í parketlagða forstofu með fataskáp, við forstofuna er útgengt út á svalir.
Stofa: Er björt og rúmgóð, stórir gluggar með góðu útsýni. Stofan nýtist bæði sem borðstofa og sjónvarpsstofa.
Þrjú svefnherbergi: Tvö svefnherbergi sem eru rúmgóð og með fataskápum og svo er eitt svefnherbergi sem er minna.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðkar, vegghengd wc, handklæðaofn, og hvít vaska innréttting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél undir innréttingunni.
Eldhús; Er í opnu rými með holi, viðarlituð innrétting með góðu skápaplássi og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu. Rýmið býður upp á marga möguleika þar sem það er mjög rúmgott.
Geymsla: Er staðsett í holinu og á milli svefnherbergjana, geymslan er nokkuð rúmgóð og væri vel hægt að breyta henni í auka svefnherbergi.
Endurbætur:- Árið 2024 var þakið endurnýjað ásamt gluggum að hluta.
- árið 2021 var parketið endurnýjað og sett eins parket á alla íbúðina og íbúðin máluð í framhaldinu
- Farið var í endurbætur á húsinu að utan árið 2009.
- Eldhús er frá 2015
- Fataskápur smíðaður árið 2015.
- Ný teppi á stigagang.
- Baðherbergi hefur verið endurnýjað að hluta og var þá gerð aðstaða til að hafa þvottavél og þurrkara á baðherberginu. Samhliða voru næstum allar lagnir sem tengjast eigninni endurnýjaðar.
- Sérmerkt stæði fyrir utan hús tilheyrir eigninni.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á