Fasteignasalan Hvammur 466 1600
** Til sölu eða leigu **
Týsnes 8 eignarhluti 102 - Mjög gott iðnaðarbil með vönduðu millilofti í nýlegu húsi. Eignin er um 200 m² að heildarstærð, þar af er rúmgott milliloft sem hefur verið útbúið yfir hluta og er ekki inni í skráðum fermetrum. Birt stærð, grunnflötur eignarinnar er 121,2 m² skv. Fasteignaskrá HMS.
Lóðin er leigulóð í eigu Akureyrarbæjar, skráð 6.994,8 m² stærð og að stærstum hluta malbikuð.
Eignin skiptist í rúmgóðan sal, kaffistofu og snyrtingu auk lagerrýmis og skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu á millilofti.Salurinn er með lökkuðu gólfi, góðri lofthæð og stórri rafdrifinni innkeyrsluhurð sem opnast í flútti við þakhalla. Inn af sal er geymslurými og snyrting.
Snyrting er með ljósum neðri skápum og wc.
Kaffistofa er við inngang eignar. Þar er harðparket á gólfi og góð innrétting með innfelldum ísskáp.
Timburstigi er upp á milliloftið sem skiptist í opið rými auk geymslurýmis. Opna rýmið er í dag notað sem skrifstofu- og starfsmannaaðstaða, þar er gluggi yfir salinn og golfhermir sem getur fylgt með við sölu eignar.
Annað- Burðarvirki hússins eru steinsteyptar undirstöður/gólf og timburvirki úr límtré. Útveggir eru gerðir úr 100 mm steinullarsamlokueiningum sem festast í límtrésburðarvirki.
- Þak er klætt með 160 mm steinullarsamlokueiningum.
- Skv. eignaskiptayfirlýsingu hafa allar eignir sérnotafleti út frá húsi að útbrún malbiks og afmarkast um hugsaða miðlínu milli eigna.
- Sér hitaveitumælir er fyrir hvern eignarhluta í húsinu. Inntak er staðsett í tæknirými.
- Snjóbræðsla í hluta af plani, tengd við affall af húsi.
- Gólfhiti steyptur í plötu.
- Einn rafmagnsmælir fyrir hverja séreign, staðsettir í tæknirými.
- Á eigninni hvílir vsk-kvöð. Upphæð vsk-kvaðar er ekki inni í kaupverði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.