RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Mikið uppgerð 5 herbergja hæð ásamt bílskúr sem er innréttaður sem 2ja herbergja íbúð.
- Bílskúrinn var byggður 2001
- Heitur pottur
- Sérafnotaréttur í bakgarði
- 3 einkabílastæði
- Fasteignamat 2026. Kr. 113.750.000
Framkvæmdir síðastliðin ár:
- Húsið sprunguviðgert og málað 2023
- Bílskúr málaður 2023
- Pallur smíðaður 2024
- Opnanleg fög í þeim gluggum sem eru ekki nýir (5stk) 2025
- Baðherbergi tekið í gegn ásamt nýjum glugga 2022
- Parket og eldhús í bílskúr 2022
- Eldhús 2019
- Veggir slípaðir 2019
- Loft að stórum hluta 2019
- Borðstofa (sólskáli) endurbyggður 2019
- Stóru rúðurnar í stofu verða nýjar (fyrir afhendingu)Eignin er 195,8 m², þar af er íbúðin 140,8 m² og bílskúrinn 55 m². Eignin er í tvíbýli, en á jarðhæð er 58 m² íbúð (annar eigandi).
3D LINKUR AÐALEIGN - (SKOÐAÐU EIGNINA MEÐ OG ÁN HÚSGAGNA)
3D LINKUR AUKAÍBÚÐ - (SKOÐAÐU EIGNINA MEÐ OG ÁN HÚSGAGNA)Nánari lýsing:Gengið er inn um flísalagða forstofu.
Stofan er stór og björt með gluggum sem vísa í suðurátt út í fallegan garð. Loft var niðurtekið og sett innfeld lýsing í það árið 2019. Vínylparket á gólfi.
Eldhúsið var endurnýjað 2019. Innréttingin er frá Kvik og tækin Siemens. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Borðstofan var endurbyggð 2019. Útgengt er frá henni út á pall.
Svefnherbergin eru 4 innan íbúðar. Í hjónaherberginu er stór, opinn fataskápur. Vínylparket í öllum herbergjum. Glæsilegt útsýni yfir Reykjavíkurborg er frá 2 svefnherbergjum.
Baðherbergið er uppgert 2022. Baðkar, walk in sturta með innbyggðum tækjum, upphengt klósett, handklæðaofn og innrétting.
Þvottahús er í kjallara en þar er vinnuvaskur, gluggi til að lofta og flísar á gólfi.
Geymslur eru tvær í kjallaranum.
Bílskúrinn er í útleigu í dag.
Stórt alrými sem nýtist vel sem
stofa og borðstofa.Eldhúsinnrétting í stofunni. 2022.
Baðherbergi með sturtu, klósetti, vaskaskáp og stæði fyrir þvottavél.
Garðurinn er stór og fallegur. Garðurinn snýr einstaklega vel gagnvart sólu og er hann mjög skjólríkur. Tveir pallar eru í honum og
heitur pottur (blöndunartæki og rafmagnspottloki endurnýjað 2024).
Geymsluskúr fyrir hjólin er í garðinum.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is