Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á 3. hæð við Háberg 5, 111 Reykjavík, með sérinngangi af svölum og rúmgóðum svölum. Samkvæmt FMR er eignin 74,60 fermetrar.
Íbúðin skiptist í anddyri, geymslu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgóða stofu með útgengi á svalir.
Nánari lýsing:Anddyri: Lokað anddyri með fatahengi. Inngengt í geymslu úr anddyri.
Geymsla: Innaf anddyri með glugga. Nýtist vel sem geymsla eða aukarými.
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðu skápa- og vinnuplássi. Borðkrókur við glugga. Korkur á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Útgengt út á rúmgóðar svalir. Möguleiki er á svalalokun.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi. Baðkar með sturtu, vaskur og speglaskápur. Aðstaða fyrir þvottavél.
Annað: - Sérinngangur af svölum
- Nýleggt parket á gólfum
- Ofnar endurnýjaðir
- Góð sameiginleg bílastæði við húsið
- Dýrahald heimilt
Staðsetning: Góð staðsetning í efra Breiðholti þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í göngufæri eru leikskólar, grunn- og framhaldsskólar, Breiðholtssundlaug, íþróttasvæði og verslun.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt