ALLT fasteignasala kynnir eignina Heiðargarður 15. Raðhús sem hefur fengið mjög mikla endurnýjun á innrabyrgði eignar. ALLT endurnýjað! Fjögur svefnherbergi.
Birt stærð eignar er 149.3 fm og þar af er innangengur bílskúr skráur 28,9 fm.Afhending eignar er við Kaupsamning! Mjög vel staðsett eign í Heiðarskólahverfi sem flutt er beint inní.
"Endurnýjað hefur verið sumarið 2026"
*** Öll gólfefni - Hurðar og Skápar
*** Golfhitakerfi
*** Raflagnakerfi og innbyggð ljós
*** Vatn og veitukerfi
*** Eldhús og eldhústæki
*** Baðherbergi - Innréttingar og tæki
*** Þvottahús og innréttingar
*** Sparslað og málað
*** Nýr sólpallur
Opnað frá eldhúsi yfir í stofu með því að taka veggi niður. Aukin birta kemur gegnum eignina.Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.Skipulag eignar: Aðkoma Hellulagt rúmgott bílaplan, forstofa, forstofuherbergi, hol, þvottahús og inn af þvottahúsi er bílskúr. Stofa og eldhús í opnu rými með útgengni út á sólpall. Hjónaherbergi mjög rúmgott. Baðherbergi og tvö barnaherbergi.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísalögð með góðum skápum
Forstofuherbergi: Með nýju parket
Hol: Nýtt Parketlagt
Þvottahús: Flísalagt með nýrri innréttingu
Bílskúr: Með bílskúrshurð og veituofn. Geymsluloft yfir bílskúr.Eldhús: Ný innrétting og tæki. Nýtt parket á gólfi. Innbyggð loftalýsing
Stofa: Nýtt parket á gólfi, útgengni út á sólpall. Innbyggð loftalýsingBaðherbergi: Allt endurnýjað, flísalagt, walk in sturta, innrétting og upphengt salerni.Hjónaherbergi: Nýtt parket og nýjir skápar. Rúmgott
Barnaherbergi 1: Nýtt parket á gólfi
Barnaherbergi 2: Nýtt parket á gólfi
Umhverfi: Hellulagt rúmgott bílaplan fyrir framan hús. Bakatil er sólpallur og gróin lóð.
Hér er eign sem búið er að endurnýja að fullu að innan og tilbúin til innflutnings. Allt var endurnýjað af viðurkenndum verktaka.
Bókið skoðun, sýnt samdægurs.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.