Vel staðsett íbúð í parhúsi, innst í botnlangagötu á Egilsstöðum. Fjögur svefnherbergi og stutt í skóla og íþróttamiðstöð. Þak var endurnýjað 2023 (þakjárn, pappi og timbur). Ofnalagnir endurnýjaðar árið 2018. Inntak fyrir kalt vatn endurnýjað 2023. Aðalinngangur er á efri hæð, forstofa þar er flísalögð og stigi á neðri hæð er í forstofu. Á efri hæð eru stofa og eldhús í opnu rými með útgengt á timburverönd með heitum potti í bakgarði. Eldri innrétting í eldhúsi hefur verið máluð. Baðherbergi efri hæðar er með nýlegum flísum á gólfi og allt til alls fyrir sturtu þó þar sé ekki sturta í notkun í dag. Eitt svefnherbergi með parket á gólfi og fjórföldum fataskáp er á efri hæð. Stigi á neðri hæð er í forstofu, ágæt lofthæð er á neðri hæð þó ekki sé um fulla lofthæð að ræða. Þrjú svefnherbergi með parket á gólfi eru á neðri hæð. Baðherbergi er á neðri hæð, þar er dúkur á gólfi og sturta. Nokkuð rúmgott þvottahús er í íbúðinni, þar er málað gólf og nokkuð hrátt rými sem útgengt er úr.
Byggt 1981
137 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Þvottahús
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2175434
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Þokkalegt - þarfnast einhvers viðhalds
Þak
Endurnýjað 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd í bakgarði
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Vel staðsett íbúð í parhúsi, innst í botnlangagötu á Egilsstöðum. Fjögur svefnherbergi og stutt í skóla og íþróttamiðstöð. Þak var endurnýjað 2023 (þakjárn, pappi og timbur). Ofnalagnir endurnýjaðar árið 2018. Inntak fyrir kalt vatn endurnýjað 2023. Aðalinngangur er á efri hæð, forstofa þar er flísalögð og stigi á neðri hæð er í forstofu. Á efri hæð eru stofa og eldhús í opnu rými með útgengt á timburverönd með heitum potti í bakgarði. Eldri innrétting í eldhúsi hefur verið máluð. Baðherbergi efri hæðar er með nýlegum flísum á gólfi og allt til alls fyrir sturtu þó þar sé ekki sturta í notkun í dag. Eitt svefnherbergi með parket á gólfi og fjórföldum fataskáp er á efri hæð. Stigi á neðri hæð er í forstofu, ágæt lofthæð er á neðri hæð þó ekki sé um fulla lofthæð að ræða. Þrjú svefnherbergi með parket á gólfi eru á neðri hæð. Baðherbergi er á neðri hæð, þar er dúkur á gólfi og sturta. Nokkuð rúmgott þvottahús er í íbúðinni, þar er málað gólf og nokkuð hrátt rými sem útgengt er úr.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.