Miklaborg kynnir: Falleg og björt íbúð með stúdíóíbúð í bílskúr – Gullteigur 29, 105 Reykjavík
Glæsileg og björt 80,9 fm þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í fallegu og rólegu þríbýlishúsi við Gullteig með grónum og vel hirtum garði. Með í kaupunum fylgir bílskúr sem hefur verið breytt í vel heppnaða stúdíóíbúð – fullkomið fyrir gesti, ungling eða leigutekjur.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing
Íbúðin er hlýleg og vel skipulögð með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, björtu og rúmgóðu stofurými og eldhúsi með góðri innréttingu. Á gólfum er parket og rýmið er allt mjög snyrtilegt og vel við haldið. Baðherbergið er með baðkari, upphengdu salerni og innréttingu undir vask. Íbúðin er að hluta til undir súð svo gólfflötur er töluvert stærri en taldir fermetrar. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Stúdíóíbúðin í bílskúrnum er með eldhúsinnréttingu, tengi fyrir þvottavél, svefnaðstöðu og snyrtilegu baðherbergi með sturtu, handlaug og salerni.
Eignin stendur á Teigunum, í eftirsóttu og rólegu hverfi með stutt í allt sem skiptir máli – Laugardalslaug og Laugardalurinn eru í göngufæri, auk þess sem leikskólar og skólar eru nálægt.
Frábær staðsetning fyrir þá sem vilja þægilegt og bjart heimili á vinsælum stað í Reykjavík.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 01/09/2017 | 27.600.000 kr. | 15.125.000 kr. | 80.9 m2 | 186.959 kr. | Nei |
| 06/09/2016 | 24.850.000 kr. | 30.250.000 kr. | 80.9 m2 | 373.918 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 64 | 72,9 | ||
105 | 80.6 | 69,9 | ||
105 | 80.9 | 72,9 | ||
105 | 88.7 | 73,9 | ||
105 | 75.1 | 71,9 |