Kasa fasteignir 461-2010.
Höfðahlíð 2 íbúð 101. Nýbygging - Bókið einkaskoðun í síma 461-2010 eða á kasa@kasafasteignir.is.
Glæsileg ný 106,1 fm 4 herberja íbúð á jarðhæð í nýju 4 íbúða húsi á rótgrónum stað miðsvæðis á Akureyri í nálægð við leik- og grunnskóla og verslanir og þjónustu. Húsið er nýbygging sem verið er að leggja loka hönd á og stefnt er á afhendingu nú í haust 2026. Húsið sem er afar vandað er staðsteypt með clt þaki og verður klætt með hvítri ál klæðningu, innréttingum frá HTH, loftskiptikerfi, innfeldri lýsingu, loftaplötum í lofti og vönduðum heimilistækjum.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og geymslu/þvottahús ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Forstofa: Þar eru flísar á gólfi og fataksápur.
Eldhús: Ljós innrétting með dökkum efriskápum, gott skúffu og skápapláss. Í innréttingu er innbyggður ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð. Í eyju er helluborð og skúffur.
Stofa: Er í opnu rými með eldhúsi, þar er harðparket á gólfi. Út frá stofu er gengið út á steypta vestur verönd. Sér afnotareitur fylgir eigninni sem er 4 metrar út frá húsvegg.
Baðherbergi: Er flísalagt á gólfi og hluta veggja. Ljós innrétting með skúffum og efriskápum. Innangeng sturta með sturtugleri, upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergi: Eru þrjú innan eignar, öll með harðparketi á gólfum og ljósum fataskápum.
Þvottahús/Geymsla: Er með flísum á gólfi. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Til hliðar er bekkur með skolvaski.
- Harðparket frá Birgisson og flísar frá Egill Árnasson
- Öll hreinlætisstæki frá Tengi
- HTH innréttingar
- Heimilistæki frá Ormsson
- Loftplötur eru í loftum neðrihæðar
- Hljóðdúkur er í loftum efrihæðar
- Innfeld lýsing í öllum rýmum með plejd snjall stýringu.
- Hvít álklæðning að utan.
- Sér bílastæði fyrir hverja íbúð.
- Snjóbræðsla í steyptum stéttum.
- Sameiginleg um 14 fm hjólageymsla á jarðhæð.
Byggingaraðli er BB Byggingar ehf.
- Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).
- Myndir að innan gætu verið að annari íbúð innan hússins, en sýna endanlegt efnisval allra íbúða.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.